Bærinn að Syðri-Löngumýri í Blöndudal

Þorsteinn H. GunnarssonSyðri-Löngumýrarbærinn var burstabær, upphaflega með þrem burstum, byggður 1860 að ég held. Hann stóð á hól u.þ.b. 200 metra frá núverandi þjóðvegi og sneri til austurs. Syðra burstahúsið samanstóð af austur- og vesturhúsi og miðbaðstofu. Þessi hluti var allur viðarklæddur í hólf og gólf af vönduðum við. Miðburstin samanstóð af stofu sem sneri fram á hlað, björt og rúmgóð. Þar fyrir innan var eldhús sem var viðarklætt en vestast var geymsla fyrir búsáhöld, amboð og reiðtygi og var hún óþiljuð. Milli þessara bursta var þiljaður gangur inn í bæinn. Syðra burstahúsið stóð á upphækkun, væntanlega hugsað til að verjast gólfkulda. Búið var að rífa þriðju burstina sem var skemma en þar fyrir innan var köld geymsla fyrir súrmat og þar innaf var eldhús. Bærinn bauð af sér góðan þokka, var vandaður og kyntur upp með þurrkuðu taði og kolum.

Í skjóli fyrir sunnan bæinn var kartöflu- og rabbabaragarður sem mikið var notaður. Einnig uxu þar kryddjurtir, svo sem kúmen og graslaukur. Milli fjóss og bæjar var haganlega gerður brunnur sem vatn þraut aldrei í. Hann var aflagður um það leyti sem flutt var í nýtt hús 1957. Árið 1977 hreinsaði ég brunninn upp en þá var hann kominn í vanhirðu. Brunnurinn er um 3 metra djúpur, þvermál neðst 0,6 metrar og efst 1,8 metrar (þetta er eftir minni). Hann er vel hlaðinn úr grjóti og neðst í botni brunnsins er ávalur steinn. Hygg ég að vatnið hafi verið ræst frá uppsprettunni á meðan á hleðslunni stóð en fyrir framan er töluverður halli. Síðan hefur fráveitulögnin verið stífluð þegar verkinu hefur verið lokið. Brunnurinn var stráheill þegar ég fór niður í hann 1977.

Vindrafstöð var fyrir ofan bæinn, töluvert mannvirki, en var óvirk þegar ég kom þarna fyrst og ekki notuð. Reyndar hafði eitthvert átak verið gert í vindrafstöðvarmálum í hreppnum því víða voru þessar myllur uppistandandi og sums staðar í lagi. Fremst á hlaðinu var stór hestasteinn, 50x130x80 cm og á honum stóð, að mig minnir, ártalið 1860 sem er sennilega byggingarár bæjarins.

 

Vistfræði Syðri-Löngumýrar

Hnattstaða jarðarinnar er 65 gráður og 29 mínútur N og 19 gráður 52 mínútur V og hallar jörðin í móti austri. Jörðin er u.þ.b. 6 ferkm. Hún á merki við Höllustaði að sunnan, Stóradal að vestan, Ytri-Löngumýri að norðan og Brúarhlíð og Blöndudalshóla að austan en þar rennur Blanda á merkjum. Eftir jörðinni renna upprunalega þrír lækir. Merkjalækurinn rennur milli Syðri-Löngumýrar og Höllustaða, alveg frá Grámannsflá og niður í Blöndu. Tveir lækir renna niður frá efri brúnum norðan við miðju jarðarinnar og afmarka bæjarstæðið og eldra túnstæði. Þar hefur verið þurrast á jörðinni.

Eins og nafn jarðarinnar ber með sér er hún mýrlend og votlend, en inn  á milli eru vallendismóar, börð og brúnir. Í 250 metra hæð yfir sjávarmáli tekur við þróttmikill fjalldrapi og samfelldar hálfdeigjur sem enda svo í Stóradalshálsi, eða svokölluðum Hálsi, sem er efsti hluti jarðarinnar. Þar uppi, sunnan við miðju jarðarinnar nær svokölluðum Lækjum, eru Kirkjuhólar. Jurtaflóra jarðarinnar var fjölskrúðug. Við plöntusöfnun vegna náms míns við búvísindadeildina á Hvanneyri, á árunum 1968-1970, safnaði ég  mörgum plöntutegundum á jörðinni en hef ekki gögn um fjölda tegunda sem vaxa þar.

Í Blöndudal er veðursæld. Þó getur verið allhvöss SV átt á Syðri-Löngumýri. En oft er blíðviðri vor og sumar. NA-átt er ríkjandi vetrarátt með skafrenningi upp mýrarnar. Norðanstórhríð getur staðið allt upp í viku. Stillur og hægviðri eru þó oft ríkjandi á vetrum. Á sumrum í sunnanátt má oft búast við síðdegisskúrum. Oft er dalalæða á kvöldin, vor og sumar. Fuglalíf var mikið, bókstaflega allt morandi af spóa, lóu, hrossagauk, lóuþræl og stelk. Maríuerla var við hús og bæi, þúfutittlingur við gilskorninga og börð og steindepill í grjóti. Rjúpur gerðu sér hreiður hið efra í fjalldrapanum. Síðan sveimuðu hrafn og smyrill yfir. Í norðurhluta Hálsins í Klaufinni, þar sem heita Högg, var lágfóta með greni og þar var einu sinn mjög óvænt skotinn minkur. Það gerði Ólafur Sigurjónsson frá Rútsstöðum og hló lengi dags að því með miklum bakföllum.

Heimild: Húnavaka, rit Ungmennafélags Austur-Húnvetninga 49 árgangur-2009

Bernskuminnigar 2 kaflar bls.74-75, Þorsteinn H. Gunnarsson

 


Bloggfærslur 25. desember 2011

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband