Eldri borgarar ekki einsleitur hópur

Vigur í ÍsafjarðardjúpiEldri borgarar eru ekki einsleitur hópur. Þar er fólk á háum lífeyristekjum svo sem fv. alþingismenn og ráðherrar, sérfræðingar, millitekjufólk með dágóðan höfuðstól og vaxtatekjur, bjargálna fólk með sæmilegan lífeyrir,gamalmenni án lífeyrisréttinda.

Þannig að eldriborgarar geta tæplega farið fram með samræmda kröfugerð á hendur ríkisvaldinu af ofantöldum ástæðum.

Landsamband eldriborgarar hefur svo sannarlega hlutverki að gegna. Þar er reynslan af fjölbreytilegu lífshlaupi og þar er innanborðs fólk sem man tímana tvenna og hefur marga fjöruna sopið.

Það getur verið gott að hafa slík samtök til að skipuleggja tómstundastarf eldriborgara og sækja fram um byggingu öldrunarheimila og sjúkraþjónustu fyrir aldraða og standa vörð um ýmis sameiginleg hagsmunmál eldri borgara.

Það er sjálfsagt og eðlilegt að skattleggja vaxtatekjur og arðgreiðslur með þeim fyrirvörum að þar sé gætt sanngirni. Í vaxtamálunum er eðlilegt að hafa einhverjir lámarks persónuafslættir og mörk og viðmið þannig að ákveðin vaxtaberandi höfuðstóll sé ekki skattlagður.

Það ætti að jafna afkomu eldriborgara. Engin ætt að þurf kvíða því að verða gamall.

Það er málið.

Áfram eldriborgarar.


mbl.is Röðin komin að eldri borgurum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. desember 2011

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband