Kjósandinn biðjist afsökunar og segi af sér?

Kjósandinn biðjist afsökunar og segi af sér.

Er það sem verið er að bíða eftir?

Hvað þá? Er þá nokkurt lýðræði ef engin er til að kjósa?

Geta menn þá bara gert það sem þeim sýnist hverju sinn?

Ekkert form og engar reglur.

Hugboð mitt er að einhver þröngur hópur eða klíka hafi leitt þetta forgangsröðunar kosningarkerfi í gegn um stjórnarflokkana og margir hafi ekki áttað sig á því hvað mundi gerast. Og ekki skilið kerfið.

Það er gert til að skapa þröngt lýðræði í kring um sérvalda menn með forgangsröðun og svo lendir almúginn  sem bauð sig fram í úrtíningnum.

En nú skulum við læra af reynslunni og standa saman um að leggja þetta kosningakerfi af.

Halda í óbundnar kosningu eins og hér hefur tíðkast í félagskerfi okkar, sveitarfélögum stéttarfélögum, samvinnufélögum, búnaðarfélögum, veiðifélögum, allstaðar þar sem ekki er listakosning.

Það ætti að vera hægt að búa svo um hnútana að allir gætu gengið sáttir frá borði.

Jafnvel nota kjördæmaskipanina til stjórnlagaþingskosninga að sjálfsögðu með réttri fulltrúatölu miðað við fjölda kosningabærra manna í hverju kjördæmi.

Frambjóðendur biðu sig fram með líkum hætt ef til vill með fleiri meðmælendum.

Svo væri bara krossað við þá sem fólk vildi kjósa og þeir sigruðu sem fengju flest atkvæði.

Er þetta nokkuð flókið? Ég held ekki?

En ég biðst innilega afsökunar á því að hafa tekið þátt í þessum kosningum, raunveruleg mér þvert um geð vegna forgangsröðunarkerfisins. En ég neita að segja af mér sem kjósandi.


mbl.is Biðst ekki afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 28. janúar 2011

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband