Villtir?

Það er misskilningur að forsætisráðherra hafi sagt þetta. Hún hafið það eftir einni flokksystur sinni sem hefði orðað þetta ágætlega að þetta væri eins ,,smala köttum" þegar til atkvæðagreiðslu kemur í þinginu. Á þessu er munur, en eigi að síður eru ummælin óheppileg.

Betra hefði verið af flokksystur forsætisráðherra að nota orðalagið að       ,, fanga hænsni" og ef athugasemd hefði verið gerð við orðalagið hefði alltaf verið hægt að snúa sig út úr því og segjast hafa átt við ,,rjúpur".

Ég vil ráðleggja forsætisráðherra að draga upp brjóstsykurspoka á næsta fundi og ganga hringinn og bjóða fólki mola og athuga hvort ekki muni glaðna yfir fólki. Og ef það dugar ekki verður hún að biðjast afsökunar.

Orð eru mjög dýr um þessar mundir.


mbl.is VG ræðir ummæli forsætisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Parísarhjólið

Þá er Parísarhjólið farið að snúast en það eru ekki allir sem skilja tímans þunga nið.
mbl.is Lilja og Reynir kaupa DV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eldsmatur til sveita

Það er að verða árviss atburður að búpeningur kafnar í eldsvoða. Í þessu tilfelli kafna 200 landnámshænsni.

Það verður fróðlegt að fylgjast með því þegar skýrsla um brunavarnir og orsakir eldsvoðans verður birt.

Í Eyjafirð drápust 200 nautgripir í nóvember 2007. Á Suðurlandi drápust um 200 nautgripir í bruna. Á Snæfellsnesi brunnu inni 400 fjár fyrir nokkrum misserum eftir því sem ég best veit.

Árið 2009 í nóvember hélt Dýraverndarsamband Íslands málþing um ábyrgt búfjárhald. Það var ekki fjölmennt en umræður ágætar og skynsamlegar.

Þar reifaði ég og skilaði til stjórnarinnar, smá skýrslu, að eigin frumkvæði, um fjósbruna þar sem 200 nautgripir brunnu inni. Var þetta atvikalýsing á framvindu málsins ,að mínu áliti, og það sem raunverulega gerist og ófullnægjandi brunavarnir og öryggi við eldsvoða.

Það er vafalaust víða pottur brotinn hvað varðar brunavarnir í útihúsum til sveita, en þó hef ég spurnir af því að verið er að vinna í lagfæringum þar að lútandi.

Það kom einmitt fram á þessu málþingi hversu óskynsamlegt það væri að vera með stór gripahús og allt í einu rými í staðin fyrir að hólfa húsin eitthvað niður.

Endalaust er hægt að ræða þessi mál og vonandi fara menn í það að lagfæra brunavarnir í útihúsum til sveita, því hér eru miklir efnahagslegir- og dýraverndarhagsmunir í húfi.

Ég votta bóndanum á Tjörn á Vatnsnesi samúð mína yfir því að missa þarna verðmætan stofn landnámshænsna.


mbl.is Útihús brunnu og hænur drápust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 28. mars 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband