Þetta var ágætt viðtal við Steingrím J Sigfússon og svo sem ekki von að hann sé sérlega ánægður.
Ég er sammála honum að það er slæm þróun að þingmenn noti réttinn til að gera grein fyrir atkvæði sínu til þess að ráðast á andstæðinga sína. Það á að gerast í almennum umræðum, þar sem andstæðingurinn hefur færi að verja sig. Mér fannst mjög mikið um árásir við þessar atkvæðagreiðslur. Ég verð að segja það hreint út að mér finnst þetta heldur ómerkilegt atferli. Þessi réttur er bara bundin við að skýra afstöðu viðkomandi þingmanns í örfáum orðum, en ekki árásaréttur.
Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn voru mjög uppteknir af lýðræðisástinni og fluttu tillögur um þjóðaratkvæðagreiðslu í sambandi við þessi mál sem er hið besta mál.
Þegar kæra vegna misvægis atkvæðaréttar landsmanna milli kjördæma kom til úrskurðar Alþingis við upphaf þings tók enginn þingmaður Sjálfstæðisflokksins eða Framsóknarflokks til máls um það mál og voru þó 3 þingmenn í kjörbréfanefnd lögfræðingar. Þar var ekki lýðræðisástinni fyrir að fara. Ekki einu sinni formaður Sjálfstæðisflokksins sem býr í stærsta kosningagettói landsins SV-kjördæmi, ræddi misvægið og hefur hann ekki nema 1/2 atkvæði á við Hóla-Jón. Í kjördæmamálinu er mjög mikill lýðræðishalli sem þarf að leiðrétta.
Þá er spurningin þessi: Hvernig höfðu þjóðaratkvæðakosningartillöguflutningsmenn hugsað sér hlutföll atkvæðisréttar í þeirri atkvæðagreiðslu?
Og varðandi hringlið í handjárnum að þá ættu sjálfstæðismenn að skjóta á fundi upp í Valhöll og ræða það þar, hverja væri réttlátast að setja í handjárn nú um stundir og hringla duglega í handjárnum.
Það er óvarlegt að nefna snöru í hengd manns húsi segir gamalt máltæki.
![]() |
Blendnar tilfinningar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 16.7.2009 | 18:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Kommúnistar stofnuðu deild á Ísafirði árið 1930 og voru félagar hennar 23 , en hún átti ekki auðvelt uppdráttar. Þótt kratarnir væru við völd þoldu þeir illa starfsemi kommúnista. Þeir þóttu of róttækir, létu mikið á sér bera og voru duglegir að halda verkalýðsfundi. Kommúnistaflokkurinn var fyrst og fremst hugsjónaflokkur. Hugsjón hans var nýtt samfélag án kúgunar og ójafnaðar. Hann taldi að nauðsynlegt væri fyrir verkalýðurinn að öðlast þekkingu á samfélaginu og stöðu sinni til að vinna bug á ásjálfstæði og óttanum við atvinnurekendur ( Karítas Skarphéðinsdóttir Neff ritgerð. Einar Olgeirsson 1983, 220-21))
Móðursystir mín sagði mér frá því að kommúnistar á Ísafirði, hefðu hafið fjársöfnun til að styrkja samyrkjubú í Sovétríkjunum.
Amma og afi voru fátæk og áttu enga peninga. Þess í stað drógu þau af sér giftingahringana og gáfu þá í söfnunina
Mér sýnist að þessir giftingarhringar séu að renta sig ágætlega og átti reyndar alltaf von á þessum stuðningi frá Rússneskum stjórnvöldum.
Sjálfstæðisflokkurinn þarf ekkert að vera hræddur um að Rússar séu að yfirtaka hér. Og ef það kemur í ljós að sjálfstæðismenn fara að skæla, að þá verður félagsmálaráðherra að setja upp teymi svo hægt sé að hugga þá.
![]() |
Rússalán í höfn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 16.7.2009 | 10:16 (breytt 14.10.2009 kl. 18:55) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 16. júlí 2009
Myndaalbúm
Okt. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Bergljót Gunnarsdóttir
-
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
-
Grétar Mar Jónsson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Jón Páll Jakobsson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Kristján Hilmarsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Lilja Skaftadóttir
-
Sigríður B Svavarsdóttir
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Valdimar Samúelsson
-
au
-
cakedecoideas
-
Kristinn Ágúst Friðfinnsson
-
Guðjón E. Hreinberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.10.): 38
- Sl. sólarhring: 184
- Sl. viku: 452
- Frá upphafi: 601800
Annað
- Innlit í dag: 35
- Innlit sl. viku: 377
- Gestir í dag: 34
- IP-tölur í dag: 33
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar