Bretar gera áramótaat í stjórnarandstöðunni

Nú er Icesave málinu lokið með atkvæðagreiðslu Alþingis þar sem atkvæði féllu þannig að 33 samþykktu og 30 voru á móti.

Þetta er búinn að vera sérkennilegur dagur.  Aðalmálið var þegar tölvupóstarnir fóru að berast fram að kaffi til stjórnarandstöðunnar frá Bretum.

Stjórnarandstöðuþingmenn komu með síman í hendinni upp í ræðustól, með það nýjasta í tölvupóstmálunum og æstu sig í hástert. Í fyrirsvari var formaður fjárlaganefndar Guðbjartur Hannesson og var mjög sótt að honum.

Vissulega eru hér alvarleg mál á ferðinni í sambandi við Icesave ekki skal dregið úr því.

En að trúa öllu sem Bretar segja í tölvupóstum er of langt gengið að mínu mati og í raun sérkennilegt að gagnaöflun skuli ekki vera formlega lokið þegar þriðja umræða hófst og að einhver lögmannsstofa í Bretlandi geti atast í þingheimi á meðan á málflutningur í þingsal stendur yfir, er nýmæli í sögu Alþingis.

Nú er að sjá hvað forseti Íslands gerir. 


mbl.is Alþingi samþykkti Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gjaldþrot Seðlabankans

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði að tæknilegt gjaldþrot Seðlabanka Íslands væri erfiðasta byrði sem ríkissjóður yrði að bera á næstu árum og væri stærsti hluti ríkissjóðshallans.

Um þetta mál væri ekki eins mikið fjalla og Icesavemálin.

Eins og kunnugt er, var Davíð Oddsson fyrrverandi  forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins seðlabankastjóri á þeim tíma sem þessir fjármunir töpuðust.

Það er nú mjög móðins að skjóta upp rakettum og skottertum sem heita nöfnum eins og Auður djúpúðga, Gunnlaugur ormstunga  o.sfrv.

Má búast við að við bætist nú nafnið Davíð Oddsson í þennan flokk sem menn skjóti upp í lofti um þar næstu áramót sér til gamans.


mbl.is Gögnum ekki haldið frá þinginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 30. desember 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband