Púðurreykur

Það væri nú æði skrítið ef fylgi Framsóknarflokksins ykist ekki við þær stjórnmálaaðstæður sem nú eru. Framsóknarmenn hafa verið iðnir við að sprengja púðurkerlingar og skjóta upp rakettum til að vekja athygli á sér.

Þannig ætluðu þeir að gefa öllum sem skulduðu fyrir hrun, afslátt af skuldum sínum sem miðaðist við dagsetninguna fyrir hrunið. Jafnvel bjargálna fólk átti að fá hluta skulda sinna  afskrifaðar.

Þá hef ég af því pat að Framsóknarmenn hafi verið í réttum í haust og vafalaust haft áhrif á einn og einn bónda sem var kominn yfir til VG.

Nýjasta útspilið er vera í förum milli Noregs og Íslands og segjast getað útvegað stór lán sem kemur svo á daginn að hefur aðeins verið spjall milli tveggja eða þriggja manna í Noregi. Eða eins og karlinn sagði; ,, Þar sem tveir menn eru komnir saman þar er Framsóknarflokkurinn."

Samvinnuarmur flokksins er í upplausn vegna ,, Gjafamálanna" svo varla eykst fylgið á þeim bænum. 

En ég get ekki leynt því að Framsókn er með frambærilegt fólk í forystu, en það eru náttúrlega málefnin og hugmyndafræðin sem skiptir máli.

Ég held að  að flokkurinn þurfi að gera upp fortíðina og skrifa pólitíska skuldaskilskýrslu til lúkningar fortíð sinn og hvað nákvæmlega fór úrskeiðis hjá honum. Ef hann gerir það ekki, þá er hann platflokkur til framtíðar að mínum dómi.


mbl.is Fylgi Framsóknarflokks eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 2. október 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband