Held að það gæti verið snjallræði fólks sem stundar stjórnmál að nefna (skíra) börn, Gleym-mér-ei. Smátt og smátt værum við komin með flokk sem væri vel sjáanlegur.
Gæti útrýmt að ástæðulaust væri að kljúfa eða stofna nýja flokka. Um þessi mála væri þá samið um í fermingar og giftingarveislum og erfidrykkjum. Þetta mundi auðvela allt stjórnamálavafstur.
Auðvitað er það kitlandi fyrir foreldra að nefna börn margbreytilegum nöfnum og hafa sjálfstætt val um það og þurfa ekki að eltast við ættarnöfn. Íslendingar hafa mikið sótt í að nefna eftir horfnum ættingjum o.s.frv. Stundum getur það orðið tog en ekki endilega ósætti í fjölskyldum þó einhver fá ekki nafnið sitt.
Eitt sinn ætlaði ég að stríða bróður mínum að það væri enginn nefndur eftir honum, og glamrað með það að ég væri kominn með nafna, en ég heiti Þorsteinn Hallgrímur og er kominn með einn Þorstein H. Bróðir minn snéri sig listilega vel út úr þessu. "Vitleysa er í þér Þorsteinn, það er alveg hellingur af nöfnum sem ég á. Arnbjörn heiti ég og það eru margir með millinafnið Örn." Litli bróðir hafði betur í þessari snerru okkar. Hann er nú látinn og er okkur auðvitað kær með þetta stóra og myndarlega nafn og er það komið í umferð og dekkar
ættar höfðingjan Arnbjörn Árnason sem var meðal stofnenda Borgarness
Hulda á Höllustöðum tjáði sig eitt sinn við mig um nöfn þegar ég var í farskóla á Höllustöðum. Það ætti ekki að kalla börn gælunöfnum. það mætti ef til vill gera þegar þau væru lítil, en ef viðkomandi væri með flott nafn þá væri betra að það vendist að kalla það fullu nafni.
Á hernámsárunum voru tekin fram stutt falleg gælunöfn eins og Dollý, Bíbí, Sísí og Dítý. Það lagðist misjafnlega í fólk en þótti smart. Ef til vill blandaðist hernámspólitíkin eitthvað inn í þetta. Trúlega.
Svona væri hægt að skrifa ritgerðir og hafa vafalaust verið skrifaðar lærðar ritgerðir um nöfn okkar og er það vel að það veki áhuga alltaf þegar barn er nefnt (skírt).
Magnús og Aðalbjörg eignuðust dóttur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 30.9.2024 | 19:43 (breytt kl. 19:47) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra er búinn að hanga á þessu byrlunarmáli eins og hundur á fiskroði í um fjögur ár. Á þeim tíma hafa meintir sakborningar mátt þola allt sem slík staða bíður upp á, harm og vanlíðan tekjumissi og mikla sorg.
Hvað verður gert til að sporna við því að sjúklingum verði byrlað eitur ef þeir verða veikir í heilbrigðiskerfinu? Setja lögreglustjórann í vaktina á Landspítalanum. Ég sé ekki hvað getur gerst í þessu máli.
Hvað um útlenda hlutann í málinu? Almennilegir blaðamenn settir í handjárn og verða að skrifa með munnninum. Þetta er satt að sega mjög ótótlegt mál. Og hver tekur við að upplýsa málið.
Hér er allt í vitleysu og best að hætta þessu og kjósa nýtt fólk allstaðar.
Óvíst hvort niðurstaðan verður kærð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 26.9.2024 | 18:32 (breytt kl. 18:39) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Óskaplega finnst manni þetta ljótt mál gagnvart þessum elskulega dreng og fjölskyldu hans. Nú má segja að búið er að útskýra málið samkvæmt lögum, að mestu.En þetta er eins og götóttir sokkar. Gera verður athugasemd við að lögmaður fái ekki upplýsingar um tímasetningu aðgerðarinnar.
Það er í meira lagi skrýtið að stofnun sem stendur í samskiptum við þá erlendu aðila í viðkomandi landi sem förinni er heitið til sé ekki sjáanlegur að vera viðstaddur brottnámið og sýni þau skjöl frá læknum og öðrum sem málið varðar.
Mér fannst konan þarna sem kom í Kastljósþáttinum standa sig vel og útskýra erfitt mál. Hissa að hún skyldi þola þetta álag ógrátandi. Þáttastjórnandinn stóð sig líka vel að leiða umræðuna á þann veg sem málið hefur hlotið.
Ég hef svo sem enga þekkingu á því hvernig á að ganga í svona verk.
Blogga svona til að opna vettvang til þeirra sem láta sig þetta mál varða, geti tjáð sig um það.
Mér finnst illa farið með okkur sem þjóð að láta svona mál fara í þennan farveg og ganga svona harklega fram við fólk í neyð.
Engin lögmaður viðstaddur ha?
Dómsmálaráðherra hafði það mikla mannhyggju til að bera að stöðva þessa atrennu að fólki sem er í neyð.
Guðmundi Guðbrandssyni formanni VG, er þakkað að setja fótinn í þröskuldinn. Það hefði nú verið fróðlegt, að sjá, ef hann hefði farið með hurðarkarminn á öxlunum, út af ríkissjórnarfundinum.
Skýra þurfi betur heimildir stjórnvalda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 16.9.2024 | 21:01 (breytt kl. 21:01) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eiganda matsölustaðsins Ítalíu þykir mótmælin afar þungbær, og verið sé að persónum ger þau, já eimitt. Hann hefði þá átt að leggjast undir feld svo engin sæi hann.
En rétt er spyrja hvernig þeim líði sem ekki fá kaupið sitt í réttum skilum. Hvað með morgunmatin og kvöldmatinn fullt af börnum sem ef til vill fá ekki mat í skólanum því þjófélagsmálin eru orðin svoleiðis að það er rifist um allt.
Til hvers eru þá samtök launamanna og verkalýðurinn, ef ekki má hefja fánan á loft og benda á þann sem stendur sig ekki og segir hvað hann heitir.
Elvar Ingimarsson er með þennan atvinnurekstur og stoðirnar eru engar undir rekstrinu og þarf að finna eitthvað út úr því. Bankin verður að bjarga þessu eða einhvernig vegin að útvega fjármagn eða alavega að allir hafi að borða. Annars verður verkalýðshreyfingin mjög reið og getur breyðst út og að gæti verið að það yrði eitthvað prjónað úr þessu.
Hingað og ekki lengra. Eitthvað hlítur að koma inn við sölu veitinga? Það þarf einhver aðili í þjóðfélagin að stoppa svona háttalag.
Þykir mótmæli Eflingar afar þungbær | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 13.9.2024 | 19:02 (breytt kl. 19:07) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Oft furðuðu menn sig á því, hve Fidel Castró Kúbuforseti hélt langar ræður. Hann ræddi um hvernig framleiðslan gengi og þjóðin fékk þetta allt í gegnum þessar löngu ræður.
Ástæðan? Þjóðin var ólæs. Því þurfti að halda langar ræður til að upplýsa hvaðeina og lögð áhersla að gera þjóðina læsa á skömmum tíma.
Á Íslandi sáu prestarnir um að halda uppi sæmilegri lestrar kunnáttu og konan við rokkinn og ef til vill, afi og amma.
Nú er hætt að nota rokk og afi og amma upptekin og fjölskylduformið orðið annað og foreldrar vinna mikið úti.
Pisakönnun er enn til umræðu og lítið gengur. Enn eiga nemendur erfitt með að skilja texta og eitthvað er útkoman lakari hjá okkur en öðrum þjóðum sem þreyta þessa písakönnun. Ef til vill skiptir þetta engu máli eða hvað?
Er þetta ástæðan fyrir öllum mistökum, sem pompa upp hjá okkur, mygla sem var ekki áður. Vegir fjúka upp og hverfa. Endalaust að menn fara yfir á fjárlögum. Menn skríða inn í hella í hláku, Hvað þýðir orðið hláka, eða hundslappadrífa?
Færsla þessi hefur birst áður en er nú birt uppfærð. Skrifari var mikið til ólæs þegar komið var í farskóla, en það var gömul kona með rokk sem kláraði verkið.
Bloggari fór um síðustu helgi í 60 ára útskriftar afmæli Landsprófsdeildar á Reykjaskóla. Það brostu allir út að eyrum þegar heilsað var. Einhver var með gamalt landspróf til kynningar og sýningar, skrifari kunni lítið og hristu höfuðið.
Skrifari hefur komist sæmilega af til sjós og lands.
Færsla þessi hefur birst áður hér á blogginu en er nú birt. uppfærð.
Slíkt væri talið algjörlega galið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 7.9.2024 | 10:44 (breytt kl. 11:05) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þó við lifum í landi sem er hættulegt hvað varðar náttúruna þá þarf oftast eitthvað slys að verða til að stjórnvöld átti sig á hver á að sjáum þetta eða hitt.
Lög um almannavarnir eru til og eftir svona létta yfirferð á þeim liggur nokkuð ljóst hvar er ábyrgðin og hver á að stjórna almannavörnum og skipuleggja þær og halda þeim gangandi.
1.Dómsmálaráðherra er æðsti yfirmaður almannavarna 2.Ríkislögreglustjóri er lykilmaður að skipuleggja almannavarnarkerfi og lögreglustjórar hver í sínu umdæmi.
3.Þá eiga sveitarstjórnir að kjósa menn í almannavarnarnefndir sem hafa með höndum stjórn á sínu svæði og hafa frumkvæði.
4.Björgunarsveitir vítt og breytt um allt land sem leysa flest erfiðu verkinn með sínum búnaði og eru lykilaðilar í björgun á slysstað og hafa gætur á eigin búnaði og mönnun eftir atvikum.
Það liggur nú við að eftir þessi breyttu aðstæður sem birtast hnífaárásum á almennum vettvangi að leikmanni finnist að Laugavegurinn sé orðinn hættulegur staður.
Hér í eina tíð var það oftast, ef maður ók eða gekk niður Laugaveginn þá sá maður gjarnan lögreglumenn á ferðinni gangandi tveir og tveir saman. Nú sést varla lögreglumaður á göngu í almannarýmum.
Bloggari hefur verið á flakki í stórborgum viða í Evrópu og í löndum við Miðjarðarhaf. Sumstaðar hefur maður séð vopnaða verði við skip og í austantjaldslöndum voru og eru hafnir afgirtar með, 2 varðmenn í varðskýlum með riffil með byssusting og í fyrstu fyllist maður óhugnaði við slíkt en það venst. Á Spáni voru verðir vopnaðir snyrtilegrum litlum skammbyssum og þorðu yfir leitt ekki að þyggja sígarettur af áhöfn skips ef í boði voru og ósk um að fá að skoða vopnin.
Nú er bloggari skíthræddur að ganga niður Laugaveginn og mundi skilgreina hann sem hættulegan stað.
Við Íslendingar höfu oft tekið á honum stóra okkar við að fækka slysum á sjó og var ekki vanþörf á að taka til hendinni. Þar hefur komið til sögunnar mikil meðvitund sjómanna, stjórnvalda og almennings til sjósslysa. Stærri og öruggar skip betur búin björgunartækjum og búnað eru kominn, veðurspár ef til vill öruggari.
Nú þarf að gera úttekkt á almannavarnar kerfum í sveitarfélögum og athuga hvort þær séu virkar, bæta þar úr ef þarf.
Lyfta upp fánanum og taka til í þessum málaflokki. Það er hlægilegt þegar farið er að benda á Vatnajökulsþjóðgarð sem einhvern ábyrgaðaraðila eða stjórnvald í nýlegum slysum í íshellum í jöklum.
Stundum finnst manni að það sé ekkert vit afgangs við stjórn í ýmsum málum í landinu.
Stjórnmál og samfélag | 2.9.2024 | 21:04 (breytt kl. 21:19) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Bergljót Gunnarsdóttir
- Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
- Grétar Mar Jónsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Hörður B Hjartarson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Jón Páll Jakobsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kristján Hilmarsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Lilja Skaftadóttir
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Sigurjón Þórðarson
- Sumarliði Einar Daðason
- Valdimar Samúelsson
- au
- cakedecoideas
- Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
- Guðjón E. Hreinberg
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 26
- Sl. sólarhring: 96
- Sl. viku: 176
- Frá upphafi: 573494
Annað
- Innlit í dag: 25
- Innlit sl. viku: 143
- Gestir í dag: 25
- IP-tölur í dag: 25
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar