Það væri ákaflega gott að það yrði gerð greining á því hvað Hrunið hafi orsakað mikið tekjufall ríkissjóðs, sem við höfum mátt þola og er nú að koma í ljós og leið af sér afleiðingar fyrir borgarana, svo sem að Landspítalinn er kominn á hæsta viðbúnaðarstig vegna fjárskorts. Hér er verðugt verkefni fyrir Miðflokkinn, Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkin að gera góða greiningu um þetta. Miðflokkurinn væri nú ekki skotaskuld úr því, Sjálfstæðisflokkurinn hefði alveg atgervi til þess, en umhugsunar vert hvort Framsóknarflokkurinn sé orðin svo lúinn og geti ekkert reiknað og í þessum dýrmætu greiningum ættu hinir framantöldu flokkar bara slíta sig frá Framsókn. Greiningar á þessum sviðum eru þjóðarnauðsyn
Hvað gera einstklingar,og fjölskyldur ef tekjufall verður. Það er farið að athuga aðra tekju möguleika, selja eða leiga eign sína. Það er einmitt það sem er verið að athuga núna að þjóðin vill hafa tekjur af þessari dýrmætu eign sem ekki er með kennitölu, en lögspekingar segja þjóðin geti ekki átt kennitölu, þótt þjóðin öll eigi kennitölur. Kannske að stofan kennitölu félag. Sagt er að þorskurinn fái ekki eiganda fyrr en hann veltur um borð. Þetta er lagalegt atriði til að ráða fram úr. Gott til að teygja lopan.
Þessi mál eru komin á eindaga og bráðum kemur gjaldagi, þegar Landspítalinn er komin á hættulegan stað.
Hver ætlar að taka ábyrgð á því? Eiga bara Jón og Gunna að taka ábyrgðina.
Hver á að ráða? Einn virtasti lögmaður þjóðarinnar hefur sagt það að stjórnarandstaðan verði að sætta sig að ráða ekki á ALþingi. Þetta er ekki flóknara en það.
Það eru meirihluta eigendur sem ráða.
![]() |
Grafalvarlegt mál en vonar að úr rætist |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 4.7.2025 | 12:18 (breytt kl. 20:17) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þegar Gunnar Smári tók upp á því að gera upp Sósíalistaflokkinn eins og gamla drossíu þá leist mér nú ekki á það mál.
Vitanlega hefur hann ætlað að gera einhverjum málstað sem hann hefur haft, hver sem hann er.
Ekki hægt að ætla mönnum nema gott eitt þangað til og ef annað komi í ljós.
Fyrst þegar þessir atburðir gerðust, fannst mér að þetta væri dálítið dularfullt, frá mínum sjónarhóli séð. Mér fannst satt að segja að Gunnar væri að taka eitthvað frá mér og mínu fólki. Í mínum ættarranni var fólk sem kaus Sósíalista stefnuna alla tíð meðan sú stefna var til og borin fram af baráttufólki.
Auðvitað á enginn einhverja hugmyndafræði, hún kemur úr ranni lifandi fólks sem hefur uppi gilt merki þess félags sem það aðhyllist og stofnsetur.
Þá taldi ég að ekki væri hægt að amast við tilurð þessarar lifandi hreyfingar, og lét kyrt liggja.
Gunnar er ýmsum hæfileikum búinn á vettvangi fjölmiðlunar og skipulags, látum hann blása. Þekki manninn ekki neitt en fannst ekki þetta væru hans heimahagar, sem ég svo sem þekki ekki mikið til.
Nú heyrast hvellir og sprengjur í öllum hornum þessarar hreyfingar. Ekki er nein Þórðar gleði í mínum ranni og vonandi meiðir sig enginn, en heldur þykir mér þungt undir fæti þessarar hreyfingar ef að hún sé ekki andvana fædd.
En svona er þetta. Alþýðubandalagið horfið, þar var ég skrifaður á fjórða sæti á G-lista Alþýðubandalagsins í fóstri hjá Ragnari Arnalds í Norðurlandskjördæmi vestra og var kallaður Þorsteinn fjórði. Þeir komu nefnilega að heimsækja mig, Haukur Hafstað bóndi og móðurbróðir minn, Skarphéðinn Magnússon og voru uppveðraðir að koma mér á þennan lista.
Annað: Einu sinni var haldið listamannaþing á landsfundi Alþýðubandalagsins. Ragnar var þá farinn að skrifa leikrit og var spurður hvort hann liti á sig sem listamann? Varla, jú annars, ég hef verið á lista mjög lengi sagði hann.
Þá hló þingheimur.
![]() |
Spáir nýju félagshyggjuafli: Fólk að ræða saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 2.7.2025 | 23:32 (breytt 3.7.2025 kl. 19:25) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Bergljót Gunnarsdóttir
-
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
-
Grétar Mar Jónsson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Jón Páll Jakobsson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Kristján Hilmarsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Lilja Skaftadóttir
-
Sigríður B Svavarsdóttir
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Valdimar Samúelsson
-
au
-
cakedecoideas
-
Kristinn Ágúst Friðfinnsson
-
Guðjón E. Hreinberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.9.): 8
- Sl. sólarhring: 46
- Sl. viku: 1050
- Frá upphafi: 599443
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 861
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar