Munum að það voru þýskir kafbátar sem sökktu íslenskum fiskiskipum á alþjólegum siglingaleiðum á Norður-Atlandshafi í seinni heimstyrjöldinni m.a. þegar Íslendingar voru að flytja ísfisk til Bretlands til að bjarga bresku þjóðini frá hungri, en þeir voru banhungraðir og höfðu lítinn kost. Þeir voru í önnum í hermennsku og að smíða vopn.
Oft hófu kafbátarnir hríðskotaárás á brú skipanna og reyndu að drepa skipsáhöfnina í brúnni og voru svo lengi að sökkva skipunum.
Þessi kafbátahernaður hætti þegar Wellington leitarflugvélarnar komu með hernum, þá hurfu þeir á brott.
Ég skora á íslenska ráðherra að mæta á sjómannadaginn næsta við Fossvogskirkju og upplifa þar athöfn eins og þeir hafa vera í útlöndum að mæta við minningarathafnir. Það væri sterkur leikur til að heimurinn verði upplýstur um þau voðaverk sem Íslendingar mátu þola í seinn heimstyrjöldinni og kusu sér ekki það hlutskipti. Íslendingar hafa verið friðsamir og vilja ekki stofna her, en verið í bandalagi við vinsamlegar þjóðir.
![]() |
Kjarnorkukafbátur skiptir um áhöfn í Eyjafirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 25.2.2025 | 11:38 (breytt 1.3.2025 kl. 19:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mikið er masað um þessa svokölluðu söngvakeppni, sem er engin söngvakeppni. Bara stikað um sviðið í einhverjum tilbúnum falsheimi.
Það væri hægt að senda úrklippu úr þætti Gísla Marteins þar sem ungt fólk með einn gítar kom með alveg stórgott söngatriði. Svo þessir geimfarabúningar, mjög einhæft búningsgervi, allir eins búningar sem notaðir eru í sláturhúsum. Ég heyrði ekkert lag, en forsenda keppninnar er söngvakeppni. Það var eitt atriðið sem var með söng. Góð laglínan hjá Látúnsbarkanum og svo var hljóðfæri notað og undirleikurinn góður, alvöru píanó.
Satt að segja rennur mér til rifjar, að það þurfi að senda þessa geimfara, sem voru svo engir geimfarar. Þessi uppákoma er afmenntandi. Eins og við erum búin að senda svo mörg yndisleg lög og með fallegri laglínu, jú, jú þetta er söngvakeppni en því fannst enginn staður, einn maður af minni kynslóð með laglínu. Þórdís og Júlí voru með sama stíl og hinir en skoruðu hátt en dugði ekki, en mega vera þokkalega ánægð. Fannst nú Þórdís hefði mátt vera meira sjánleg í atriðinu.
Maður er sennilega orðin gamall þegar maður leyfir sér að rita svona. En satt að segja er melódían alveg að hverfa úr nýjum sönglögum en ég neita því ekki að allt er þetta fólk vel vel menntað sem er að basla í þessum menningargeira og vill vel. En niðurstaðan er komin og við hana verður að una. En það var forvitnilegt að fá álit utan lögsögu Íslands.
![]() |
Þjóðin bregst við: Djöfull elska ég VÆB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 23.2.2025 | 11:27 (breytt kl. 11:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég hef ekið þarna um oft að vetri til á leið til Grindavíkur. Þegar hrím er yfir landinu þá geta glöggir menn séð hrímþoku leggja víða upp úr landinu í vegkantinum. þetta er ekki áberandi á sumrin því þá heldur fólk að þetta sé tíbrá.
Hvað þýðir það. Það er hiti undir. Þar sem hiti er, er eldur. Held að það þurfi nú að skoða þetta eitthvað betur. Það er nú það.
![]() |
Vilja reisa 30 þúsund fermetra verslunarkjarna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 21.2.2025 | 22:46 (breytt kl. 22:47) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hef sjaldan séð svona krappa lægð strunsa austur Grænlandsund svona djúpa og sterka.
Hvað segja menn um hlýnun jarðar er þetta eitthvað frá henni komið? Myndi þetta skot ekki nálgast skýringu sem fellibylur, nærri því?
Elstu menn muna varla annað eins og myndi ég teljast með elstu mönnum 79 ára. Man einu sinni eftir einhverri febrúarlægð. Hún tók þungan fjárnvagn og setti hann upp í lotið og fleygði honum niður hólinn hjá mér. Þá sá ég að þakið á fjárhúsunum á Reykjum var farið að lyftast milli stoðar og dregar. Það var nú aðalega því að kenna að þar hafði ekki veri gengið nógu vel frá festingum milli stoða og dregara í byggingu ,tryggja festinguna með girði. Ég var svo heppinn að það var planki í ganginum sem hægt vara að negla niður í gólfplanka og upp í sperru þá hreyfðist ekkert. Ég var mjög fljótur að átta mig á þessu. Svo opnuðust fjárhús dyrnar með gýfurlegum hvelli og eitthvað af rúðum splundraðist í stafni hússins.
Þá komu tveir kennarar Jón Pálsson og Hjörtur Einarsson kennarar á Húnavöllum og hjálpuðu mér að græa þetta allt saman með fyllsta öryggi og þar með var mér borgið. Fyrir það er ég þakklátur. En viti menn þá kom útkall frá oddvita hreppsins, og tilkynnti að fjárhús á Orrastöðum læju undir skemmdum og var óskað eftir aðstoð Ég fór strax, átti nýlega MF165 var á keðjum og gat ekki fokið og var ég með fyrstu mönnum á staðinn. Tók ég eftir að viðveruhús landeigands, sem var gamallt símamanna skúr á hjólum og með dráttarbeysli. Hann hafði tekist á loft og farið í loftinu yfir veginn og splundrast þar. Þegar að fjárhúsum að Orrastöðum var komið þá var Sigurjón bóndi standandi í garðanum æðrulaus og horfði upp í loftið og var að taka í nefið. Nokkrar skemmdir urðu á fjárhúsunum og dreif öfluga sveit sveitunga að og græuðu öll mál eins og hægt var. Sigurjón sagði hinsvgar æðrulaus ,, Ég vorkenni Þórmóði (sem var landeigandi jarðar og húsa)´´. það var sérstök tilfinnig að heyra hann segja þetta, en hann var leiguliði Þormóðs ,en hann landsdrottinn og því nokkur munur á stöðu, en ég var reyndar leiguliði á minni jörð sem er næsta jörð, Reykir. Torflækingar stóðu þétt saman að koma öllu í rétt horf og ganga frá. Megin ástaða þessa að svona fór var að mínum dómi að steypa milli sperra var orðin morkin og sperru endar fúnir.
Víða höfðu hross tvístraðst í haga í þessu veðri og var næsta vers að ná þeim saman og hlynnað að þeim og koma í skjól og koma rúllum til þeirra. Þetta var mikill kvellur og eru einhverjir hér inn sem geta ef til vill staðsett þetta veður í tíma tali?
![]() |
Hættustigi almannavarna lýst yfir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 5.2.2025 | 16:03 (breytt kl. 20:17) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Held að það sé ekki þjóðarhagmunir sem verið er að skýrskota til missir á þjóðarteknum af einhverum ímynaðum verðmæti missast út úr kvóta kerfinu með því að auka pínulítið meira af þorski hjá tryllu körlum mismun á fiski af strandveiðum og stórúgerðinni. Þetta er móðursýki vegna þessa að það verður eylíitið tap á rekstrarreikningi útgerðarinnar kannski, en minni skemmdir á vegakerfinu. Kvótakóngarnir falla í yfirlið ef heildar kvótinn lækkar um nokkur fiska vegna þessara breytinga og þar með sjá þeir að þeir fá ekki að gambla með fiskveiðikerfið eins og þeim sýnist af því að þjóðin á það og ræður yfir því. Þetta veit hún Inga Sælands, hún er alin upp við fisk og slor á Ólafsfirði.
Það er hægt að segja sögu af þingmanni Sjálfstæðisflokksins á Snæfellsnesi sem var í útgerð og það var smá halli á rekstrarreikningi útgeraðinnir. En þessu halla dæmi var reddað, með því að taka 6o milljóna kr lán, þá var hægt að eyða hallanum og fá þokkalegan arð af útgerðinni. Svona furstar kunna nú á fjárhagskerfið í landinu.Fjármálaráðherra Íslands hefur ritað lærað ritgerð með öðrum, en þessi lærdómur hefur ekki verið sýndur almenningi eða útskýrður. Það þarf að upplýsa alþýðuna um innihald rigerðarinnar. Alþýðan er sanngjörn og gæti liðkað til, en hún hefur mætur á trillukörlum og þeir eur góðir fyrir ferðamenn að sjá atvinnulífið.
![]() |
Ríkisstjórnin skuldar svör |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 3.2.2025 | 09:18 (breytt kl. 20:42) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Bergljót Gunnarsdóttir
-
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
-
Grétar Mar Jónsson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Jón Páll Jakobsson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Kristján Hilmarsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Lilja Skaftadóttir
-
Sigríður B Svavarsdóttir
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Valdimar Samúelsson
-
au
-
cakedecoideas
-
Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 33
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar