Skákborðið er bara 64 reitir.

Skáborði er bara 64 reitir og komast því ekki allir á borðið.  Það er nú ekkert grín að vera á þessu taflaborði. Það er skákað og drepi hægri vinstri aðallega vinstir sýnist mér því hægrið sleppur alltaf. Er hugsanlega með tvennu upp í Hæstarétti? Og Bjarni ljómar. Svo er spurning hver er drottning? Er Lilja drottning með einn lítinn prins frá Framsókn? Hann verður patt og lendir milli skips og bryggju og málið kært af því að það gilda jafnréttislög og kona vill fá ráðuneytisstjórastarfið hjá Lilju. Páll Magnússon var ráðherra en hætti sjálviljugur því hann þurfti að sinna börnum sínum. Hann fór úr röðinni og að komast inn í hana aftur er þrautin þyngri.  Það er eins og nota peð til að rekja upp drottningu. Það tekur tíma og þarf  mikla klæki.

Nú veit almenningur ekki hver er í máli við hveran? Er Lilja í máli við sjálfa sig sem persóna eða er hún í máli sem menntamálaráðherra?

Svo stendur biskupinn á Katrínu og er biskupinn kona að maður? nei = Þórhildur Sunna Ævarsdóttir og segir skák og telur að hvíta drottningin (Katrín) komist ekki neitt. Þá kemur í ljós að það er allt í lagi hjá henni. Hún getur mjakað Bryndísi inn í ráðuneytið af því að Bryndís var í röðinni og með gilda pappíra. Svo er líka gott að hafa fólk í framlínunni sem heitir Bryndís. Það vekur upp svona öryggistilfinningu. Maður talar nú ekki um það að hafa reynslu af því að semja og reyna aðhalda friðinn. Það er gull og gersemar.

Þannig að Katrín virðist með gjörunna stöðu, Lilja er að reyna að rekja upp peð og Þórhildur Sunna hefur hlaupið á sig og þekkir ekki 36. gr laga nr.70/1996. Það veit í rauninn engin hvernig þetta fer.

Allir gætu fallið á tíma.


mbl.is Skipun Bryndísar hafin yfir vafa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samkvæmt theoríunni á aldrei að birta myndir af veggjakroti.

Samkvæmt theoríunni á aldrei að birta myndir opinberlega af veggjakroti. Við það vera veggjakrotararnir  ánægðir til þess er leikurinn gerður. Bara mála yfir eða ná því af með háþrýstisprautu. Allt veggjakrot sem krotað er í óleyfi, hvort sem það er krotað á einkaeigur eða opinberareigur eru skemmdarverk. Þó einhverjir verkefnastjórar eða mannauðsráðgjafar haldi öðru fram. Vissulega má glepjast á þessu hátterni og kalla það list en hún á þá að vera á afmörkuðum svæðum, en ekki til ama almenningi.

Þetta sögðu finnskir sérfræðingar sem komu til Strætó að upplýsa starfsmenn í biðskýladeild um þetta hátterni.


mbl.is Óskemmtileg aðkoma eftir veggjakrot næturinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitða, það eru bara aumingjar sem gefast upp.

Þetta er nótan hjá kallinum. Bara sitja og láta bera sig út. Nú bíður hann eftir því að byssubúðirnar fylli á hillurnar. Þá er hægt að láta almenning skjóta herinn niður eins og gæsir

Það eru aumingjar alsstaðar sem eru að reyna að svindla í þessum kosningum. Svo er hans eigin flokkur að klofan, þannig að þetta er ekki gæfulegt. Hann fer sennilega í útlegð til Kúbu, bakdyrameginn úr Hvítaleikhúsinu.


mbl.is Trump neitar að gefast upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband