Listamaður í Laugarnesi

Í fréttinni segir Hrafn Gunnlaugsson:

,,„Ég sé ekki í röðum ungra listamanna í augnablikinu neina sem að gætu tekið einhvern fána í þjóðfélagsbaráttu.“

Þetta þykja mér undarleg ummæli. Ég stend í þeirri trú að hallarbylting í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík þegar Bestiflokkurinn komst til valda hafi verið framkvæmd undir forustu að hluta af listamönnum. Allavega voru þeir allir á lista sem komust inn í borgarstjórn.

Mér sýnist að áhersla sé lögð á það að gera foringja úr Jóni Gnarr og þar styðst ég eingöngu við mitt pólitíska nef.  Allavega notar hann nýstárlegar aðferðir við að koma sér á framfæri sem getur gagnast honum í framtíðinni.

Hinir sjá svo um málaflokkana, atburðina og fundina. 

En hvort þetta tekst get ég ekkert sagt um.

Þannig að þetta er einhver misskilningur hjá Hrafni. Hvort vinur hans Davíð Oddson hafi hvíslað þessu að honum til að breiða yfir þá staðreynd að listamenn eru á fullu í pólitík í Reykjavík skal ósagt látið.


mbl.is Bankarnir áttu að fara í þrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guð blessi Sjálfstæðisflokkinn

Formaður Sjálfstæðisflokksins hefur gefið út nokkurskonar sjálfstæðisyfirlýsingu um að flokkurinn sé enn til og hafi fótavist og sé nokkuð brattur og vilji gera þjóð sinni eitthvert gagn.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur komið þjóðinni í þá stöðu sem hún nú er, með stefnu sinni og hugmyndafræði og ráðleysi.

 Það er gott fólk í Sjálfstæðisflokknum.

Guð blessi Sjálfstæðisflokkinn.


mbl.is Boða formenn flokka á fund í fyrramálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki Mafíuna aftur

Sennilega er ekki skynsamlegt að kalla Mafíuna aftur yfir sig og tilgangslaust að efna til kosninga.

Best er að Íslendingar ráði ráðum sínum og fari að halda reglulega fundi þar sem mönnum verið frjálst að halda sínar ræður og komast að einhverri niðurstöðu hvernig við viljum hafa hlutina.

Hætta ofbeldi og rúðubrotum.

Á Sturlungaöld voru kirkjur virtar sem griðastaður og kölluðu forfeður okkar ekki allt ömmu sína.

En á þeirri tíð voru valdsmenn dregnir fyrir dómstóla og dæmdir fyrir að gera almenningi miska.

Þannig fékk Sturla Sighvatsson  útlegðardóm og Órækja Snorrason einhvern dóm.

Ég held að það sé best að hætta við þetta stjórnlagaþing og vera með almennan fundi vítt og breytt um landið og slíta ekki fundi fyrr en mælendaskrá er tæmd og tillögur liggja fyrir um hvað á að gera.

Stjórnarskrá okkar er að mörgur leyti ágæt og virkaði í Icesavemálinu, þó þar hafi verið um 66 ára gamalt ákvæði að ræða sem aldrei hafði verið notað.

Góðar stundir.


mbl.is Rúður brotnar í þinghúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband