Skyldur vegfarenda á slysstað

Samkvæmt umferðarlögum ber vegfarana að veita alla þá aðstoð ef slys ber að höndum í umferðinn. Ber þar fyrst að nefna að vernda vettvang svo ekki hljótist meira tjón af en orðið er.

Þá þarf að sinna slösuðum og kanna ástand þeirra og tilkynna slysið til lögreglu. Þegar slys verður á fólki er nauðsynlegt að aðgæta hvort viðkomandi er með meðvitund og losa um það sem getur truflað andardrátt.

Nauðsynlegt er að stöðva blæðingar ef þær eru miklar. Annars ber að láta viðkomandi verða fyrir sem minnstu hnjaski þar til sjúkrabíll kemur.  Ástæðulaust er að fólk sé að skipta sér af ef nógir eru fyrir til að veita aðstoð. Það getur jafnvel flækt málin. Eftir að lögregla hefur yfirtekið vettvang ber vegfaranda að draga sig í hlé nema sem vitni.

Ég var með fyrstu mönnum á vettvang þarna en var ekki vitni að hvernig slysið bar að. Mér þótti nú aðstæður heldur nöturlegar og bjó mig undir það versta. Ekki gat ég áttað mig á því hvernig bílarnir hafi skollið saman, en áreksturinn var mjög harður þá sást á ummerkjum. Ég sinnti ungum manni sem var í fólksbílnum. Hann var með höfuðáverka en virtist óbrotinn. Það eina sem ég gat var að sýna honum stuðnig þar til sjúkraflutningamenn kæmu. Búið var að hringja í lögreglu.

Eftirköst eftir svona árekstur geta verið mikill vegna þess að fólk fær sjokk.

Við skulum vona að allir komist heilir frá þessum árekstri.


mbl.is Fjórir fluttir á slysadeild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband