Erfiðir tímar hjá bændum

Það eru erfiðir tímar hjá bændum. Það er búið að vera mikil eldgos og öskufall og valdið miklum búsifjum. Að vísu hefur þetta verið staðbundið á ákveðnu svæði.

Spretta hefur svo sem verið ágæt og heyöflum góð en þó hafa melatún brunnið vegna þurrka og vandséð að hægt sé að fá nokkrar bætur út á slíkt.

Þá hafa menn ekið ógætilega innan um lambfé og talið er að yfir 80 fjár hafi farist af þeim völdum á Vestfjörðum einum og munar um minna. Ekki bætir nú úr skák að bændur eru farnir að finna ummerki um sauðaþjófnað á láglendi og er nú skörin farinn að færast upp í bekkinn.

Eilíf umræða um samkeppni getur nú verið þreytandi fyrir bændur þegar þeir koma kúguppgefnir inn frá bústörfum. Neytendur eru sífellt að sífra um lægra verð á búvöru en gera sér enga greina fyrir því hvað þarf að hafa fyrir hlutunum. Á meðan þeir geta hangið í sumarfríum, jólafríum, páskafríum, helgarfríum, hinsegin dögum, menningarnótt, eða 150 daga á ári verða bændur að vinna.

Stigið á bakÞað er nú nóg fyrir bændur að hafa áhyggjur af girðingarmálum milli nágranna og þessu eilífa pexi í smalamennskum og göngum og réttum heldur en að þurfa taka þátt í því að vera att saman við nágrannann um einhverja samkeppni. 

Samkeppnin til sveita felst nú aðallega í því að hafa hús sæmilega máluð, græn tún og myndarlegar búvélar og sauðfé af Séra-Guðmundarkyninu og vera vel ríðandi.


mbl.is Segja frumvarp draga úr samkeppni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband