Sjómenn og þingmaður að Norðan

Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur er með all sérstæða auglýsingu á baksíðu Fréttablaðsins í dag.  Auglýsingin er mótmælaauglýsing og hefst á spurningunni.

,,Hvers vegna? Síðan kemur textinn:

Sjómenn vinna við hættulegar aðstæður fjarri heimilum sínum oft svo vikum skiptir!

Síðan heldur textinn áfram:

Á meðan þingmaður með lögheimili norður í landi en býr hjá mömmu sinni í Grafarvogi heldur fullum skattfríðindum í dagpeningsformi, ræðst ríkistjórnin á sjómannaafsláttinn.

Þessari aðför að sjómönnum mótmælum við! Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur".

Eftir upplýsingum frá félaginu þá þurfa sjómenn að borga fæðiskostnað sinn til sjós en hafa fæðispeninga 1300 kr/ sólarhring frá útgerð til að greiða matarkostnað, ef ég hef rétt skilið og eru fæðispeningarnir skattskyldir.

Íverukostnaður og kojupláss þurfa þeir væntanlega ekki greiða fyrir, en er skaffaður væntanlega hlífðarfatnaður. Þannig að þeir sleppa á sléttu ef kokkurinn bruðlar ekki með matföng.

Þingmaðurinn sem virðist vera í auglýsingunni ákveðinn þingmaður sem sjómenn þekkja og er að Norðan og býr hjá mömmu sinni, að sagt er upp í Grafarvogi. Það kemur ekki fram í auglýsingunni að hann þurfi að borga mömmu fyrir húsnæði og fæði en hefur greiðslur frá ríkinu sem ætlað er að standa straum af útgjöldum vegna dvalar að heiman. Þannig að þingmaðurinn sleppur á sléttur ef mamma fær sitt. Aftur á móti fær þingmaðurinn enga ívilnun vegna fatnaðar.

Þannig að þá er það sjómannaafslátturinn sem stendur út af í samanburði við þessa aðila. Bæði störfin eru hættuleg og til marks um það var þingmönnum heimilt að hætta að ganga með hálsbindi í þingsal, en í búsáhaldabyltingunni var nokkur ótti um að hægt væri að hengja þingmenn í bindinu.

Það sem vekur undrun mína er myndbirting með auglýsingunni. Öll skip upp í fjöru og strönduð.

Hvað segja skipstjórnarmenn við þessu eru menn alltaf að stranda skipum sínum?

Er ekkert jákvætt við að vera sjómaður?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Þorsteinn, það er merkilegt að þú sem segist vera fyrverandi sjómaður skulir láta frá þér fara svona skrif,  þar sem þú þikist ekki einu sinni skilja auglýsinguna. En kannski er þetta bara Ísland í dag.

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 10.4.2010 kl. 16:36

2 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Það kemur ekkert fram í færslunni að ég skilji ekki auglýsinguna. Það er myndbirtingin sem vekur undrun mína og ég tel að svona myndbirting hafi neikvæð áhrif á málefnið.

Sjómann- og vélstjórafélag Grindavíkur birtir auglýsingu og verður að sætta sig við að hún sé tekinn til umfjöllunar á opinberum vettvangi.

Málefnið er opinberar greiðslur og skattaívilnanir til tveggja hópa sem inna störf fjarri heimilum sínum.

Það eina sem ég geri er að bera þetta saman og velta því fyrir mér hvort þeir slepp á sléttu varðandi kostnað varðandi það að dvelja langdvölum fjarri heimilum sínum þar sem þeir eiga lögheimili og aðsetur.

Það sem félagið aftur á móti gerir að það er að sneyða að ákveðnum alþingismanni með mjög ósmekklegum hætt í stað þess að hafa kjark til að nefna hann fullu nafni og það finnst mér ekki mikil háttvísi.

Það að ég sé fyrrverandi sjómaður hindrar mig ekki í því að fjalla um dagskrármál líðandi stundar varðandi sjósókn og sjómennsku.

Það er engin einkaréttur í gangi varðandi umfjöllun efnisins.

Með bestu kveðju

Þorsteinn H. Gunnarsson, 11.4.2010 kl. 12:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband