Ein snotur saga af Reykjskóladrengjum.

2014-06-15_15_38_39.jpgÉg mun nú setj hér smá frásögn um útrás okkar nokkurra Reykjaskóladrengja þó fréttin sé að uppstöðu um samkynhneigt fólk, þá breyti það ekkert sögunni.

Á einu afmælismóti á RSK sagði einn kennari frá þegar Reykjaskóladrengir fóru í leiðangur um nótt á kvennavist á Grund sem var út á bakka.

Þannig var að Ólafur Kristjánsson skólastjóri þurfti að fara af bæ til Reykjavíkur. Bundumst við nokkrir og sammæltumst og töldum sóknarfæri að að fara um nóttin af vistinni og hlupum suður eftir. Ekki vorum við fyrr komnir út en miklir ljósgeislar af öflugum vasaljósum eltu okkur. Hurfum við snarlega niður fyrir fjörubakka og lágum þar í leyni en vorum snarlega gómaðir. Skildum við ekkert í því hvernig við fundumst. Skýringin kom hjá kennarnum í ræðu hans. 2014-06-15_20_04_00.jpgVið höfðum nokkrir farið í kaupstaðinn og keypt okkur stígvél. Þau voru með sjálflýsandi rönd eins og margir kannast við. Þegar við hlupum niður fyrir fjörubakkan sáu kennararnir  lappirnar hreyfast og gátu miðað okkur út og þá var spilið búið. En kennarinn spurði þessarar spurningar í ræðunni, sem var nú ef til vill ekki gáfuleg: ,,Hvað voru ætluðu þið að gera."

2014-06-15_20_57_51.jpgÉg stóð upp á eftir og útskýrði að við höfum sennilega ætlað að spila Marías við stúlkurnar. Þarna  upplýstist sem sagt þetta mál eitthvað eftir 40 ár.

Allir vorum við kallaðir fyrir, held ég þegar Ólafur kom heim. Það sem hann sagði við mig man ég eins og það hefði gerst í gær.,, Þorsteinn minn og ég sem treysti þér." Meira var það ekki og vitaskuld hrundi ég yfir þessu mikla trausti sem ég naut og hafði brotið þann trúnað.

2014-06-15_16_52_29_1281899.jpgÞó að tíðin þyki köld,

Mun það ei vara lengur.

Ríður bak við rekkjutjöld,

Reykjaskóladrengur.

Talinn eftir Lárus Þórðarson frá Grund.

 

Við vorum náttúrlega engir kórdrengir


mbl.is Kynfrjáls í öruggu umhverfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. maí 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband