Sýnishorn til DNA ákvörðunar

Ég hef ekki lesið dóminn og get því ekki gert mér grein fyrir þeim lagaröku sem höfnunin byggir á.

Það hlýtur að vera ofmælt að það þurfi að grafa líkamsleifar Bobby Fischers upp til þess að hægt sé að skera úr um faðerni stúlkunnar með DNA rannsókn.

Það þarf að taka ofan af gröfinni íslenska mold og lyfta lokinu af kistunni og taka líkamssýni til rannsóknar. Það geta nú varla talist helgispjöll. Auk þess geta verið einhverjar einfaldar aðferðir til þessa verks.

Það er nauðsynlegt upp á sögu þessa heimsmeistara í skák að sá sem gerir tilkall til að Bobby Fischer sé faðir sinn fá tækifæri til að fá úr því skorið með öruggum og viðurkenndum vísindaaðferðum.

Þannig að þessi sýnataka getur ekki talist nein helgispjöll.

Það skiptir máli ef Fischer á sannanlega afkomanda og er réttur hans að hið rétta komi í ljós og hægt sé að púsla saman ævibrotum þessa snillings sem varð íslenskur ríkisborgari á efri árum.


mbl.is Uppgreftri Fischers hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Mikið er ég sammála. Það fer þá allur efi í burtu, fyrir utan það að mikilvægi þess að vita frá hverjum maður er komin er mikilvægt fyrir hvern og einn eins og þú bendir á. Vonandi að Hæstiréttur gerir sér grein fyrir mikilvægi þess. Ætti ekki að vera mikið mál að taka sýni myndi maður halda. 

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 1.6.2010 kl. 00:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband