Framsóknarflokkurinn mátar Ólaf Ragnar fv. félaga sinn á Bessastöðum

2014-06-25_14_21_05.jpgÉg fór til Bessastaða í dag svona til að sjá hvað væri þar á seiði. Ekki var margt fólk þar að mótmæla þessari nýju ríkistjórn. En þó kraft mikið fólk.

Nýi utanríkisráðherran var voða fín og smart. En það er eina bótin sem saumuð hefur verið í þetta hjónateppi xB og XD.

Púað var á Sigmund Davíð og honum sýnt rauðaspjaldið, en þarna var svona harður kjarni fólks sem er ekki alveg sama hvernig stjórnarfarið er í landinu og vildi meina að þetta væri spillt lið.

Nýi forsætisráðherran sem myndaði ríkistjórn án þess að hafa til þess umboð frá forseta sem mér finnst sérkennilegt að forset láti það gerast var vel til hafður með bindi og alles. Hann er svona í rólegri kantinum og gleymir vonandi ekki að mæta á fundi, eins og ég er farinn að gleyma að far í sund og leikfimi.

Nú, nú mér þykir hlutur forsetans heldur rýr varðandi þessa stjórn og má eignlega segja að hann hafi látið Framsóknarflokkinn máta sig á síðustu metrunum.

Mér hefur fundist Ólafur vera glæsilegur og flottur forseti og mjög klár, en nú fipaðsit honum og er hann nú úr minni sögu.

Ég gekk við staf að Bessastöðum og er því hálfgerður stafkarl enda orðin 70 ára með kaup en engan húsbónda. En það er eng að síður betra en að vera í sporum Ólafs nú um stundir að mínu mati.

Skák og mát.

Bless

 


mbl.is Ný ríkisstjórn tekin við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leppstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar?

2014-06-24_09_15_40.jpgLÆTUR FORSETINN GRAFA SIG LIFANDI?
Það sem upp úr stóð á fréttamannafundi sem forsetinn boðaði til sl. mánudag var að niðurstaðan í þeirri pólitísku stöðu sem uppi er yrði að vera í sæmilegri sátt við þingið og þjóðina.
Sú uppstilling sem nú blasir við er dónaleg móðgun við hvort tveggja. Þess vegna verður forsetinn að skerast í leikinn og skipa stjórn sem flestir geta unað við og starfað getur fram að kosningum sem verður að halda fljótt að afloknum forsetakosningum.
Ef hann gerir þetta ekki og leggur blessun sína yfir þann hráskinnaleik sem nú er uppi í stjórnmálum Íslendinga eru orð hans á blaðamannafundinum á mánudaginn dauð og ómerk og í stað þess að standa við þau grefur hann sig og forsetaembættið lifandi. Yrði það hraklegur endir á embættistíð Ólafs Ragnars Grímssonar. Vonandi eigum við ekki eftir að sjá það gerast.

Heimild: Facebooksíða Ámunda Loftssonar vinar míns í Noregi

Fyrirsögnin er færsluritara.

Siðasta verk Ólafs er að veita Leppstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar brautargengi. En ég held að þetta hafi verið gert óvart hann réð ekki við aðstæður.2014-06-19_18_50_30_1280126.jpg


mbl.is Boða til mótmæla við Bessastaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. apríl 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband