Fréttin af kröfu um afsökunarbeiðnina seig niður á vef Moggans og er ekki sýnileg lengur

Sjálfstæðisflokkurinn hefur auðvitað hagsmuni af því að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sé í sviðsljósinu. Hann fær ótrúlegt rými hjá Morgunblaðinu. Það nartar fylgi Framsóknar niður og bætist þá við Sjálsfstæðisflokkinn, hugsanlega.

Auk þess að á meðan eru Bjarni Ben og Ólöf Nordal ekki í skotlínunni, en þau voru víst á þessum Panama listum.

Þau hafa aftur á móti gert grein fyrir sínum málum og almenningur virðis sætta sig við þeirra skýringar. Auk þess að það hefur enginn það á tilfinningunni að þau séu að ljúga neinu.

Svo kom Bjarni með svo firna sniðugt og frumlegt fjárlagafrumvarp fram með mikinn tekjuafgang sem hægt var að nota til að koma til móts við fyrirséðar kröfur um hækkun framlaga Og bóndin Haraldur Benediktsson formaður fjárlaganefndar kom sterkur út úr sinni vinnu og laðaði það besta fram í þinginu, enda var frumvarpið samþykkt án mótatkvæða sem var náttúrlega nýtísku sigur fyrir löggjafarvaldið.

Bjarni og Ólöf virðast vera klókari að smeigja sér út úr þvögunni enda komin af greindu fólki, en Sigmundur er alltaf eins og hundur í réttum inn í miðri þvögunni í sífelldum áflogum við almenning. Það er ekki bráðhollt fyrir stjórnmálamann.

En fréttinn af Sigmundi hefur sigið á óeðlilegum hraða niður svo eitthvað hefur verið kippt í spotta, Því þessi umfjöllun hefur einungis óhagstæð áhrif á Framsóknarflokkinn og við eigum að bera virðingu fyrir 100 ára eldriborgurum.


mbl.is Engin þörf á að biðjast afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 29. desember 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband