Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins 2016

karitas_1276402.jpgSólarkaffi Ísfirðingafélagsins árið 2016 verður haldið föstudaginn 29. janúar í hinum glæsilega veislusal Gullteig á Grand Hótel Reykjavík. Húsið opnað kl. 19:30, borðhaldið hefst kl. 20:00, ballið hefst kl. 23:00. Veislustjóri: Rúnar Rafnsson, sölumaður og diskótekari (sonur Sigrúnar og Bjössa Charles).

Hljómsveitin Húsið á sléttunni, með Halldór Smárason og þá Olgeirs bræður úr Bolungarvík í framlínunni leikur fyrir dansi. Þeir félagar eru margrómaðir fyrir skemmtilega og hæfileikaríka spilamennsku. Ræðumaður kvöldsins verður Margrét Geirsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs Ísafjarðarbæjar, kórstjóri og söngkona með meiru.Forsala á aðgöngumiðum verður á Grand Hótel Reykjavík laugardaginn 16. janúar kl. 14:00 – 15:00.

Grand Hótel Reykjavík verður með tilboð á gistingu og Flugfélag Íslands verður með tilboð á flugi í tilefni af Sólarkaffinu. Þeir sem ætla að nýta sér þessi tilboðið, vinsamlegast tilkynni við bókun tengingu við Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins. Nú gleðjumst við saman í góðra vina hópi.

Munið að taka kvöldið frá, skemmtum okkur saman.
Stjórn Ísfirðingafélagsins

Heimild: Tekið af vef Ísfirðingafélagsins

Amma mín Karítas Skarphéðinsdóttir frá Viðey og og afi minn Magnús Guðmundsson, ,,Mangi fori" eiga sér snotra sögu á Ísafirði svo það má segja að ég eigi ættir að rekja þangað og er ég töluvert drjúgur yfir því.

picture_024_1276403.jpgÞá var ég háseti á Ísborginni ÍS 250 frá Ísafirði en hún var síðutogari sem breytt var í fraktskip og silgdi víða um heimsin höf. Endlok Ísborgarinnar voru þau að hún var seld til Miðjararhafs og notuð þar í smyglflutningum. Það komst upp þegar settur var fantaflottur radar á skipið og þótti strandgæslunni það grunsamlegt og vildi stöðva skipið og fá að skoða það. Því var ekki hlýtt og hóf þá gæslan skothríð á brúna og við það var skipið stöðvað og fært til hafnar.

Í mínum huga hefur alltaf verið mikill sjarmi yfir Sólarkaffinu og það fólk sem þangað sækir ansi maskaralegt og flott.

 

 


Bloggfærslur 29. janúar 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband