Hvernig er öryggismálum háttað hjá Orkuveitunni?

Það er skelfilegt fyrir fólk að lenda í þessu og ánægjulegt að ekki urðu slys á fólki. En það er gott að þessi mál eru kominn í sviðsljósið. Það verður þá eitthvað hugsanlega gert í þessum öryggismálum. Ég gerði mér sérstaka ferð á fund eins borgarfulltrúa fyrir ári síðan og bent á að vegurinn er alltof nálægt stofnæðinn frá Nesjavöllum og það gæti augljóslega skapað hættu og ekki ætti ekki að leyfa almenna umferð þarna sérstaklega að vetri til í hálku. Bíll hefur áður lent á mannvirkinu og má enn sjá glerbrotin á slysstað. Ég hef ekið þarna tvisvar á dráttarvél og hafði gott næði til að íhuga þessi mál. Í annað skiptið var ég að koma ofan frá Hvanneyri og ók Skorradal- Uxahryggi- Skógarhóla og Nesjavelli. Allstaðr er greiður aðgangur að þessu mannvirki og það óvarið.
Eitt sinn var leyfður rallýakstur þarna og vakti ég athygli á því á obinberum vettvangi hversu arfavitlaust það væri. Það sem þarf að gera er að færa veginn um 10-20m til SA sennilega og hafa vegrið sem tæki við árekstrinum ef til hans kæmi, þannig verk eru framkvæmd með skurðgröfum og jarðýtum og er frekar eindregin og auðveld framkvæmd en kostar vitaskuld peninga. Það yrði bágt ástandið ef stofnæðin færi í sundur á Þorra í 20-25 stiga frosti. Hræddur er ég um að einhver mundi góla þá, og hvar væri þjóðfélagið statt við slíkar aðstæður. Varla yrði nokkur  dreginn til ábyrgðar. Þessi vegur er á forkastanlegum stað svo liggja rollurnar undir mannvirkinu og lömbin stökkva upp á vegin og ökumaður getur ekkert gert og er vorkunn. Það er eins og allstaðar sé heimskan í fyrirúmi hjá okkur Íslendingum
. Nú verður eitthvað að gerst í þessum öryggismálum.
Þetta er um líf og dauða fjölda manns að ræða ef stofnleiðslan færi í sundur í miklu frosti og gæti órsakað gífurlegt tjón. Í raun ættu Almannavarnir ríkisins að ganga í þetta mál.


mbl.is Betur fór en á horfðist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 12. september 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband