Hvert fóru peningar Samvinnutrygginga?

Það er margt Framsóknarmanna í Skagafirði. Þetta hefur verið eitt sterkasta vígi þeirra síðan á Sturlungaöld frá því Sturla Sighvatssson var drepinn skelþunnur í réttinni á Örlygstöðum. Atkvæðavægi til kosninga til Alþingis er þar helmingi meira en í öðrum kjördæmum.

Nú er það svo að ekki er hægt að saka íbúa heils héraðas um að vera glæpamenn, það er fjarri lægi, þó sagan hafi verið stormasöm og margir atburðir gerst í héraðinu. En hvort eitthvað Mafíuhreiður sé þar enn til staðar skal ósagt látið og verða að fara framm ítarlegri rannsóknir á því hvert eignir Samvinnumanna fóru.

Það er mikill miskilningur að Sambandið, SÍS, hafi orðið gjaldþrota. Þvert á móti voru einhverjar eignir til þegar Landsbankinn tók það yfir og stofnaði félagið Hömlur utan um þær.

Fyrir þessum ráðstöfunum var aldrei, svo ég vit, gerð grein, innan félagskerfi Samvinnuhreyfingarinnar og á fulltrúafundum. Alla vega sótti ég deildarfundi og stundum aðalfundi Samvinnufélagana KH og SAH og aldrei var kynnt neitt uppgjör þar þessu lútandi.

Svo voru bara einhverjir prinsar búnir að eignast skipafélag og slátur úr Sambandinu og orðin talsverður sláttur á mönnum.

Ætli það sé ekki eitthvað slíkt sem Birgitta sé að hugsa, hvar  hugmyndafræði flokks þeirra á lögheimili?

Birgitta er alveg manneskja að koma fram í þessu máli en ég held að hæpið sé að ætlast þess að stjórnmálamenn gangi fyrir hversmans dyr og hneygi sig og biðjist afsökunar á stjórnmálastarfi sínu, þó það sé svo sem þekkt að Sturl Sighvatson hafi gengið suður  til Rómar að biðjast fyrirgefningar á sinni háttsemi, ef það er það sem verið er að biðja um. En en Sturla gelti líka menn og það er litið alfarlegum augum, þó það sé hvergi uppi áform að finna útúr því að 30 milljarðar eign Samvinnutrygginga ( Giftsjóðurinn ) hafi horfið sporlaust.

Stjórnmál eru frjáls Íslandi, en vitanlega verða stjórnmálamenn að haga orðum sínum skikkanlega og ekki hræða fátæka bændur sem eru ef til vill með lítinn kvóta og Kaupfélagið á staðnum hafi ekki látið hann fá lán til að kaupa kvóta.

En eitt gott dæmi um það hve náið Framsóknarmenn líta á flokkinn og ríkisvaldið, er eftirfarandi saga sem ég heyrði á minni tíð á Norðurlandi. Það var PRÓFKJÖR og það riðlaðist vegna blindhríðar. Þá var það ráð tekið að forðagæslumenn á einhverjum svæðum voru fengnir til að taka kjörkassana  með  sér í vorskoðunninni og láta bændur og búalið kjósa. Forðagæslumenn eru opinberir sýslunarmenn ríkisins. Þetta er svona svipað og þegar Sturla Sighvatsson reið um héraðið og heimtaði mat og vín af bændum í aðdragandi Örlygstaðabardaga.

Amen eftir efninu.


mbl.is Vilja að Birgitta biðjist afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 30. maí 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband