Skelfilegur atburður.

Það er með sorg í hjarta að ég skrifa þessi orð. Skotárás er atburður sem er skelfilegur fyrir öll samfélög en sérstaklega fyrir lítil samfélög þar sem fólk þekkist vel og tengist hvert öðru.  Blönduós hefur breyst við þetta mál, en allir gera sitt til að komast út úr þessu með mannlegri reisn. Það er þó auðveldara um að tala en í að komast.

Það standa allir með Blönduósingum og trúlega þorri landsmanna, sem heyrir þessa fregn, fær tár í augun og harm í hjart. Hugur okkar er hjá þeim sem nú eiga um sárt að binda.

Rannsókn málsins hefur sinn gang en það er þekkt að fólk er lengi að jafna sig eftir slysaatburði og sérstaklega fólkið sem á skyldmenni sem tengjast vettvangi og þeim sem að hafa komið og lent óvænt í þessum aðstæðum. Ég veit að Blönduósingar munu halda vel utan um þau og hvert annað, styðja og styrkja. 

Svo óska ég eftir því að fólki fari varlega með orð ef einhver hefur þörf að tjá sig hér á síðu minni.

Aðgát skal höfð í nærveru sálar segir gamalt íslenskt máltæki.


mbl.is Lögreglan fór vopnuð á vettvang
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Samhryggist hlutaðeigandum.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 22.8.2022 kl. 14:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband