Frítt sundkort er auðæfi fyrir eldriborgara

Það var skemmtilegt svar sem Björgvin gaf í sjónvarpsfréttum þegar hann sagðist vera að fá sundkort eins og eldriborgarar fá allir sem þeir vinna fyrir með að ná vissum aldri.

Staðreyndin ern nefnilega ef ekki eru um peningaverðlaun að ræða þegar fólki hlotnast einhver heiður, þá er um sæmd og virðingu að ræða.

Þannig er til dæmis um fálkaorðuna. Henni fylgir engin yfirráð yfir sýslum eða skattaumdæmum eða jarðnæði eins og konungar mundu gera væru þeir alvöru kóngar og varla gagnast hún í ferilskránni, þó margir eldriborgarar haldi áfram að lesa atvinnuauglýsingar, mest sér til skemmtuna en stundum komast þeir að því hvað þeir geta lítið, þrátt fyrir aldurinn. Verkefnisstjóri, viðkomandi þarf að vera mannauðstjóri og allskyns kröfur um hitt og þetta.

Í gamla daga stóð:,, Háseta vantar á bát." ,,Ráðskona óskast í sveit má hafa með sér barn, en má búast við því að verða börnuð" var það ekki einhvern vegin svona?


mbl.is Björgvin bæjarlistamaður Hafnarfjarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband