Umferðarslysið er tæplega á vegum tónlistarhátíðarinnar á Laugarvatni

Keyrði þarna fram hjá og þá var lögregla mætt og 2 sjúkrabílar. Yfirleitt horfi ég ekki á slysaatburði á vettvangi, heldur hraða mér í gegn til að umferðin geti haldið áfram, þar sem ekki var búiða að loka veginum sem var ekki svo sem ástæða til þar sem engin var slasaður.

Jeppi var tjónaður á vinstra frambretti og sneri í vestur á hægri kanti. Annar jeppi var illa farinn á hægri framenda og hægrahjól  og hjólabúnaður illa farinn. Bíllinn var á vinstri vegarhelmingi og sneri líka í vestur. Móðir var þar ásamt barni sínu sem var mjög skelkað en allir að því er virtist ómeiddir. Bráðaliðar á vettvangi.

Ekki get ég áttað mig á hvernig þetta slys hefur borið að því þarna er vegur breiður enda nýlagður og góður.

Engar rollur sáust á svæðinu sem hefðu hugsanlega getað truflað ökumenn.

En hæpið er að tengja tónlistarhátíðina inn í þetta slys eins og gert er í þessari frétt.

Umferð er þarna frekar hröð og hvít rúta var á undan mér og ég var hrifinn af rútubílstjóranum því þegar hann fór að hægja á sér setti hann hasarljósin á til að var þá sem á eftir komu við hættunni. En bláu ljósin sáust illa í sólskininu.

Lögregla hefði mátt tryggja vettvang ögn betur með keilum. En við svona aðstæður geta orðið raðárekstrar, vegn þess að fólki liggur svo reiðinnar ósköp á og gætir ekki að hraðanum.

Menn eru svo styrðir á bremsupetalanum.

 


mbl.is Umferðaróhapp við Laugarvatn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband