Kvæðið um bensín frá 1956 Guðmundur Kristjásson bóndi

13. Ágúst 1956 yrkir Guðmundur bóndi Kristjánsson á Kirkjubóli í Önundarfirði kvæði sem hann nefnir Bensín.

Það er í bókinni Sólstafir ljóðasafn Hörpuútgáfan 1993.

Það hefst á þessum texta: Ég er bensín á tvær og tuttugu líterinn.

Síðan fer hann nokkuð ofan í saumana á bensíni með orðum skálds.

En vel að merkja, það þarf ekki að fara í skrár Hagstofunnar til að vita hvað bensín kostaði 1956. Guðmundur upplýsit okkur um það 2,20kr/L

Fyrsta verð á bensíni sem ég man eftir var ca 2,50kr/L, en þá var maður farinn að aka dráttarvél.

Aðal galdurinn fyrir þá sem ráku bensínsjoppu var að láta fylla fyrir hugsanlega hækkun á bensíni á tankana, því þá var mismunurinn á útsöluverði og innkaupsverðinu hagnaður.

En það er fagaðarefni að einhver hreyfing kemst á þennan markað.

Maður er að fá sms- skeyti í tíma og ótíma um að nú sé þessi eða hinn afslátturinn á bensíni og þá er maður ef til vill með fullan tank, þannig að slík kjör eru mjög óstapíl auk þess sem verið er að vekja mann á morgnana þegar maður vill kúra eitthvað lengur.


mbl.is Selur lítrann af bensíni á 169,9 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband