Útgerðaraðallinn (hluthafar) að undirbúa leiftursókn á samfélagið

Þessi aðgerð á Akranes vekur upp spurningar hvort verið sé að undirbúa sókn að ríkisvaldi um breytingar á gengi eða að fá einhverja sjóði stofnsetta til sveiflujöfnunar eða ívilnanir til að gróðinn geti verið meiri eða haldist á.m.k. í stað. og fiskvinnslufólkið notað sem hreyfiaflið í því dæmi.

Þessi dæmi sem Vilhjálmur Akranessgoði styðja það. Bæði hefur verið öflugur hagnaður á Akranesi og á þá að henda öflugu sjávarútvegsfyrirtæki í sjóinn sí svona. Bara jarðýturnar á það, ha.

Öflug fyrirtæki ætti nú að þola einhverjar dægursveiflu, vel statt í góðum bæ, með langa útgerðarsögu og mikla verkmenningu og duglegt fólk, sem nennir að vinna.


mbl.is „Mönnum ekki til sóma“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gjaldmiðill á náttúrulega ekki að vera þannig að stjórnmálamenn geti fiktað við gengi hans eins og þeim hentar...hverslags gjaldmiðill er það..??

Gengi gjaldmiðils hlýtur að endurspegla gang efnahagsins í landinu og eins og er streymir inn gjaldeyrir og það vitanlega styrkir krónuna.

Nú fer sumarið að ganga í garð með tilheyrandi ferðamannastraumi, sem þíðir mikið gjaldeyrisinnstreymi og mín spá er sú að gengisvísitala krónunnar, sem er núna 166, verði 120 í sumar.

En ef menn vilja ræða það hvort að krónan henti okkur sem gjaldmiðill, ja þá veit ég ekki hvort maður á að þora að fara út á þá hættubraut.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 28.3.2017 kl. 15:32

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þrýstingurinn núna er af sama meiði og varð varðandi "forsendubrestinn" 2009 í kjölfar Hrunsins. Þá var það 40% fall krónunnar sem setja þurfti á annað hundrað milljarð króna alls í til að leiðrétta hluta skekkjunnar. 

Núna er það 40% hækkunn krónunnar sem er að koma af stað svipuðum þrýstingi. 

Ómar Ragnarsson, 28.3.2017 kl. 16:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband