Kaupin gangi til baka

Fyrst lánveitingin er ólögleg með gengistryggingu virðast bílakaupin og viðskiptin líka vera ólögleg. Þannig að eðlilegt er að kaupin gangi til baka ef það er vilji samningsaðila.

Eðlilegt er að bílakaupendur fá uppgjör vilji þeir það og skili nýjum og ónotuðum bílum inn til lánveitanda eða reyni að koma sér saman um sanngjarna niðurstöðu þar sem ekki hallar á hvorn annan. En þetta hlýtur að vera samningsatriði varðandi viðskipti.

Ég sé ekki að Alþingi eða almenningur sem hafa ekkert verið viðriðnir þessi viðskipti hafi neitt með þessi mál að gera. Nema þá opinberar stofnanir sem eiga að sinna eftirlitsþættinum.

Hitt er svo annað mál hvort settur ríkisaksóknari hafi ekki verið fullfljótur á sér að sleppa ráðamönnum sem áttu að sjá um þessi mál af hinu opinbera frá frekari rannsókn. Hann hafði að vísu fyrirvara sem hljóðaði ,, að svo stöddu". Og er þar sennileg átt við að ef eitthvað nýtt gerist í málum.

Hann hefði átt að setja þá á biðlista og láta þá fá málsnúmer. Það má í raun segja að þeir séu á biðlista þar sem fyrirvarinn ,, að svo stöddu gildir" þangað til öll mál sem tengjast hruninu eru til lykta leidd.

Það er náttúrlega deginum ljósara að opinberar stofnanir sem eiga að sjá um þessi mál hafa klikkað. Að láta ólögmæta fjármálagerninga hrannast upp. Það er afar tæp lögfræði. Og engin hóstaði.

Það er öldungis óviðunandi og ófært að eftirlitsstofnanir hafi bara átt að vera til skrauts og einhverskonar dvalarheimili heldrimanna.

Ég held að almenningur sem ekki hefur staðið í lántökum af þessu tæi, sé nú heldur farinn að þreytast á öllum þessum mistökum sem átt hafa sér stað og hafi ekki áhuga á að taka að sér byrðar vegna þessarar vitleysu.


mbl.is Sleppa ekki frá skuldunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eru lántakendur ekki líka lögbrjótar? Bera þeir enga ábyrgð? Þeir sem tóku gjaldeyristryggð lán voru að veðja gegn krónunni og tóku um leið stöðu gegn henni.  Þeir voru í raun að braska eins og sumir sem fjárfestu í hlutabréfum á röngum tíma í von um hagnað.  Í bankahruninu tapaði hlutabréfakaupandinn öllu sínu og öllum er sama.  Skuldarinn sökk dýpra í skuldafenið og nú verða allir aðrir að hjálpa honum.  Fróðlegt væri að vita hversu stóran þátt í gengisfalli krónunnar lántakendur eiga.

Gunnar Hauksson (IP-tala skráð) 18.6.2010 kl. 09:59

2 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Já þetta er athyglisvert. Það er náttúrlega fullt af smáum hlutafjárkaupendum sem hafa tapað sínum fjármunum.

Ríkistjórnin hlýtur að bregðast við. Hún er alltaf að bregðast við einhverju.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 18.6.2010 kl. 17:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband