Skýrslur og álit tínast og minna lesið sem á að lesa. Álit umboðsmans borgarbúa rykfellur nr.7/2013

Það er auðsjánlega ekki gott ástand í ríkiskerfinu og á sveitarstjórnarstiginu. Embættismenn virðast latir við að halda skýslum og álitum til haga og minna lesið en áður þó það ætti að vera hluti af daglegum störfum.

Nú mun ég segja eina sögu af slíkum atburði:

Fyrir margt löngu var auglýst deiliskipulag fyrir Laugarnes og var öllum gefin kostur á að gera athugasemdir. Nýtti ég mér það boð og sendi inn athugasemd. Laut hún meðal annars að því að eitthvað væri gert  við Laugarnesið sem ,,Park" og lagði til að þar yrði þróaður Sjávarútvegsgarður. Þar væri hægt að vera með upphengda skreið og ýmislegt sem tilheyrði atvinnuháttum fyrri tíðar eins og margar menningar þjóðir gera í sínum löndum. Eitthvað fleir stóð í þessum athugasemdum sem ég er búin að gleyma. Þetta var svo sem lesið og þótti ágætt. Hætti ég svo að hugsa um þetta.

Upp úr þessu var athygli mín vakinn á því það mætti nú með lítilli fyrirhöfn laga ýmsilegt sem betur mætti fara í Laugarnesinu og margt væri framkvæmt þar í leyfisleysi. Fór ég að gefa þessum málum gaum og komst að ýmsu misjöfnu. Vegna ábendinga hefur borgin stundum farið í verk þarn á svæðinu en allt hefur það verið máttlaust.

Nú, nú, eitt sinn snemma morguns, þetta gerðist eins og í Hrafnkötlu, í skýringum Hermanns Pálssonar frá Sauðanesi professors í Edenborg, þar gerðust allir atburðir snemma morguns, sá ég steypubíl og steypudælubíl vera við vinnu niður í friðaðri fjöru á Laugarnestanga 65 . Þá varð mælirinn fullur  hjá mér og ákvað að spyrjast fyrir um þetta hjá þar til bærum yfirvöldum, sem var þá byggingarfulltrúinn í Reykjavík. Vildi ég vita hvort þarna hafi verið gefið byggingarleyfi fyrir byggingu og hvað hún ætti að vera margar hæðir. ,,Þeir" fóru á vettvang og skoðuðu starfsemina. Reyndist hún öll ólögleg. Kölluðu þeir þetta óleyfisframkvæmdir. En lítið var aðhafst í málinu. Var þá farið að spyrja um þetta allt saman og varð fátt um svör og bréfum ekki svarað og allt í miklu fálæti. Var ég nú ekki kátur með fram gang málsins en var bara í þessu sjálfur og fékk mér engan lögfræðing, því þetta var ekki það flókið. Þarna sá hver maður að ekki var farið að lögum og engin vilji til þess að svo skildi verða.

Þar kom að þolinmæði mína þraut og sá ég að búið var að stofna nýtt embætti í stjórnkerfi Reykjavíkurborgar ,,Umboðsmaður borgarbúa."

 Nú bar vel í veið að velta þessu máli til hans og fékk ég fund og skrifaði ég bréf og laut kvörtun mín að því að bréfum væri ekki svarað. Umboðsmaður tók allt málið upp til skoðunar frá a-ö og skilaði áliti um málið og varð ég mjög ánægður með hans vinnubrögð. Auðvitað komst hann að því að borgin svaraði ekki bréfum, en það sem meira var, þá hóf hann sjálfstæða rannsókn á málinu og komst að því að aldrei var farið eftir því sem samþykkt var og engin viðurlög lögð á þó það væri hægt og var allt þetta mál í tómum lögbrotum. 

Lagði hann fyrir borgina að hefja málið frá upphafspunkti og klára það eftir laganna bókstaf.

Féll þetta mál nú úr fókus hjá mér þar sem ég fluttist í Kópavog.

En þegar voraði fór ég á stúfana og bað um fund hjá Byggingarfulltrúanum í Reykjavík til að forvitnast um afdrif álits Umboðsmansn borgarbúa nr.7/2013. Það var nú snúið að fá fund en mér var boðið að hann hringdi í mig og gerði hann það og áttum við greinargott samtal um þessi mál. Þess ber að geta að nýlega urðu breytingar á mannahaldi embættisins, Magnúsi Sædal Svavarsson hætti en við tók Björn Stefán Halldórsson en Magnús sinnti þessu máli nokkuð. Um mitt sumar fór ég að skoða lagaálitið og tók þá eftir því að það var ekki stílað á byggingafulltrúann heldur sviðstjóra umhverfis og skipulgssviðs  Ólöfu Örvasdóttur og afrit sent á mig. Þannig að það var ekki von að nýi byggingarfulltrúinn væri vel heima í þessu máli.

Bað ég nú um viðtal við sviðstjórann, en því var svarað að sviðstjórinn væri farinn í sumarfrí. Þar stendur málið. Sviðstjórinn fór í sumarfrí.

IMG_3100En Krakkarnir í Laugarnesi fóru í sumarfrí og slógu Bæjarhólinn og kirkjugarðinn í Laugarnesi og voru með viðburð í Maraþoninu á Laugarneshólnum. Mikið gaman.


mbl.is Fyrrverandi ráðherra furðar sig á afdrifum skýrslunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þurrkhúsið á Kirkjusandi. Tapasbarinn við höfnina.

Það er ótrúlegt að svona geti gerst að einhver tekur sig til og rífur hús sem er friðað eins og stendur í frétt Morgunblaðsins. Mig langar að segja litla sögu af húsi sem nærri var farið sömu leið.

Á lóð Strætisvagna Reykjavíkur á Kirkjusandi stóð þurrkhús gamalt. Það var friðað og nýttist Strætó sem geymsla fyrir ýmist dót. Það hafði í gamladaga verið notað til að geyma saltfisk sem þurrkaður var á Kirkjusandi og breiddur þar til sólþerris en settur inn á kvöldinn á meðan á þurrkun stóð. Það má segja að í gegn um þetta hús hafi farið mikill auður og gjaldeyrisskapandi verðmæti, því saltfiskur var og er verðmæt útflutnigs vara. Nokkurs konar Seðlabanki.

Nú, nú á fyrri tíð starfaði ég hjá S.V.R í biðskýladeild og hafði starfstöð rétt hjá þessu þekkta húsi. Einn dag kómu menn frá Slökkvuliði höfuðborgarsvæðisins, mjög galvskir og fóru að bauka við húsið. Rifu járn af hluta þaksins og varð ég hissa á þessum tiltekktum. Næsta dag komu þeir aftur, enn hressari og munduðu mikilli rafmagssög. Fóru upp á þakið og skáru gat á það. Niður komu þeir auðvitað aftur og þá tók ég einn tali og spurði hvað þeir væru að gera. Nú við ætlum að nota húsið til að æfa reykköfun. Þá sagði ég að þetta hús væri friðað að ég best vissi. En viðkomandi vissi ekki betur en það ætti að rífa húsið.

Fór ég þá að kynna mér þetta mál og spurði mann sem hafði mannaforráð á Kirkjusandi hvað hann vissi. Hann taldi að húsið yrði rifið. Þá vatt ég mínu kvæði í kross og hafði samband við Sigrúnu Magnúsdóttur fv. borgarfulltrúa og þáverandi forstöðukonu Sjóminjasafnsins og bar þetta undir hana. Hún kváði og sagði að það væru þrjár tillögur á borðinu:

1. Að taka húsið í heilu lagi og flytja það af staðnum og gera það upp.

2. Að rífa það og merkja hverja spítu til varðveislu.

3. Að taka sýnishorn úr innviðum og geyma.

´Eg sagði henni málavexti og bað hana að athuga hvort ekki væri hægt að stöðva Slökkvuliðið sem hún sagðist mundu einhenda sér í. Daginn eftir beið ég eftir Slökkvuliðinu. Það kom ekki.

Seinna kom dráttarbíll og húsið var hýft á bílin og flutt upp í Gufunes og geymt þar. Síðan var það flutt niður í Slipp og byrjað að lagfæra það þar og klárað á þeim stað við höfnina sem það stendur nú á og þjónar nú sem veitingahús. Mjög glæsilegt hús sem heitir Tapasbarinn Vesturgötu 3b.

Sigrún Magnúsdóttir hefur kvatt mig að segja þessa sögu og verð ég hér með við því enda liggur það svo vel við í þessari frétt og kann ég Sigrúnu þakkir mínar fyrir snöfurlega framgöngu í þessu máli.

Fólk verður að vera á verði um sögu sína og umhverfi og ég er býsna kátur með þetta framtak okkar Sigrúnar Magnúsdóttur fv. umhverfisráðherra.

Lýkur svo hér að segja frá Þurrkhúsinu á Kirkjusandi.


mbl.is Friðað hús rifið fyrir helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gáttaður á lygi Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar varðandi Framsóknarflokkinn

Það er ekki hlutskipti mitt að halda uppi vörnum fyrir Framsóknarflokkinn, enda er ég ekki skráður í flokkinn, hef einu sinni tekið þátt prófkjöri flokksins sem kjósandi og var skráður í flokkinn af einhverjum mönnum um fermingu, að mér forspurðum og það stóð ekki lengi. En ég þekki marga Framsóknarmenn í gegn um tíðina og margir þeirra eru kunningjar mínir.

En mér blöskrar purkunarlaus lyg Sigmundi Davíð og tilefnislausar árásir hans á Framsóknarflokkinn í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra. Haft er eftir Sigmundi í Morgunblaðinu i gær af þessu tilefni. Þar segir:,,Hann tíndi ýmis mál til en sagði að svik Fram­sókn­ar­flokks­ins við lands­byggðina og ís­lenska mat­væla­fram­leiðslu væru átak­an­leg­ust".

Í Kjarnanum 22. des. 2017 stendur þetta, en þá áttu bændur og í raun öll landsbyggðin í miklum vanda:

,,Á fjáraukalögum er gert ráð fyrir að sauðfjárrækt fái 665 milljónir króna til að mæta markaðserfiðleikum í greininni. Greiðslurnar koma til viðbótar við beingreiðslur úr ríkissjóði samkvæmt búvörusamningum, sem nema 4,7 milljörðum að meðaltali á ári".

Eru það svik við landsdbyggðina og matvælaframleiðsluna að koma til hjálpar á ögurstundu? Auðvitað var Framsóknarflokkurinn ekki einn í því að ná þessu máli fram. Nú blasir sama staða við sauðfjárræktinni og má segja að nú sé ekki hægt að halda óbreyttri stefnu áfram og varla verður sett meira fé í umframframleiðslu á dilkakjöti. Útflutningsuppbætur voru afnumdar með lögum nr 46/ 1985

En að vera svona sár út í fyrrum félaga sína yfir því að hafa verið vikið burt úr formannssæti vegna skítugra Panamaskjala og að þurfa að grípa til svona málflutnings er með eindæmum. Og ráðast á fyrrum félaga sína, það er ekki stórmannlegt.


mbl.is Gáttaður á svikum Framsóknarflokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttin um útflutning kemur á hárréttum tíma. Réttir víða í dag.

En er glamrað um útflutning á dilkakjöti af ráðamönnum. Þetta er allt vel tímasett því nú er verið að berjast við offramleiðslu á dilkskjöti, eftir mikla fyrirhöfn að fækka og draga saman. Niðurfærslu og skerðingu og hverskonar samdrátt. Mikið skorið vegna riðuveiki. Jafnvel skorið á bæjum þar sem aldrei hefur komið upp riða og stofnin því þrautræktaður gegn riðusmiti og hefði átt að setja þar upp tilraunabú.( Brúsastaðir í Vatnsdal ). Mikið fé farið í þessar aðgerðir og markaðsátak.

Útflutningut á dilkakjöti hefur verið mýrarljós. Heimsmarkaðurinn er yfirfullur af ódýru kjöti sem fæst á dumings verði.

Vel að merkja er hér um að ræða bókun, en ekki haldbæran samning um magn og verð.

Auk þess að svona vegalengdir með vöru í loftflutningum eru þegar til á taka þeir flutningar sem valda mestri umhverfisvá, eyða miklu flugvélabensíni og valda útblæstri.

En íslenskir ráðamenn geta farið í réttir án þess að lenda í ryskingum og spurt bændurnar hvernig dilkarnir séu og sopið af fleygnum.

Ég hitt nokkra fjallamenn á göngum nú í vikunni. Tónninn var þessi: Féið er orðið svo feitt að það getur ekki gengið og það kann ekki að ganga og rennur lítið áfram. Þetta er allt bílflutt í afrétt og úr réttum. Auðvitða kannast maður við þetta og tók sjálfur þátt í þessu. Svo er fé allan veturinn á innistöðu og hreyfir sig ekkert.

Íslenska sauðkindin er vaxinn út úr umhverfi sínu, en eftir sem áður heldur hún uppi fjörin í réttum og göngum og ráðamenn sækja í sollin með kínversku bókunina frá Ni Yuefeng, en engan samning.

Það er réttmætt af Guðlaugi að líta hýruauga til innflutnings Kínverja á dilkjöti, sem var á síðastliðnu ári 125 þús tonn.

Sennilega væri ódýrast að koma ofan í Kínverjana einhverju af saltkjöti og vera ekki að flytja bein á milli Kína og Íslands.


mbl.is Lambakjöt til Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breytt ásýnd Blöndugils vegna virkjunar. Ný gönguleið fyrir ferðaþjónustuna

Í dag er Blöndugil væntanlega smalað í tengslum við smölun á Auðkúluheiði. Það er erfið smölun og hættuleg aðgerð, því gilið er hrikalegt, klettar og sillur sem féð klifrar í. Lendir í sjálfheldu og þá er betra fyrir smalann að elta ekki. Fyrir neðan hefur Blanda bylt sér í aldanna rás og til búinn að taka við mönnum og fénaði.

Nú er þessar aðstæður breyttar. Blanda er bara smá sitra á meðan verið er að fylla Blöndulón, en er á haustin kominn á yfirfall.

 Ég hygg að Blöndugil gæti verið áhugaverð en torrsótt gönguleið á þeim tíma sem verið væri að safna í lónið og ætti ferðaþjónustan að geta sótt viðfangsefni í þá gönguleið en þó allt með ítrustu varúð, því farvegurinn er svo að kalla þurr. Aldrei ætti að fara í gilið nema með leyfi og vitneskju sveitarstjórnar Húnavatnshrepps og vitund stjórnenda Blöndustöðvar.

Hér læt ég fylgja pistil, sem birtist í Húnavökunni riti Ungmennasambands A-Hún. 56 ár. 2016. Um aðstæður sem bændur geta glímt við í göngum á Blöndugili.

Frásögnin er frá eigin reynslu þar í glímu við lambhrútskettling og beri heitið Lambhrútur á Blöndugili:

 

,,Eitt sinn var ég í eftirleit á Auðkúluheið. Fórum við tveir saman, að fyrirmælum gangnastjóra sem þá var Jóhann í Holti, frá Kolkuskála, pislahöfundur og Sveinn Þórarinsson sem var maður laufléttur til göngu. Héldum við norður heiðina gangandi. Kom það í minn hlut að ganga Blöndugil. Gekk ég nú norður gilbarminn og bar ekkert til tíðinda fyrr en ég kem út í Landsendahvamm sem er nyrsti hluti Blöndugils fyrir framan eyðijörðina Þröm.

Þegar ég skyggnist niður í hvamminn sé ég að allvænnn lambrútur stendur bísperrtur á stórum steini og sneri í norðvestur sem og var vindáttin. Nú voru góð ráð dýr. Ef lambhrúturinn styggðist taldi ég að ég mundi ekki koma honum upp úr gilinu, hann færir fljótt í kletta eða ófærur auk þess að hann væri fljótur að uppgefa mig.

Fóstra mín sagði mér í æsku, hvernig refur veiddi rjúpu í skafrenningi. Hann einfaldlega læddist að henni  hlé megin við vindinn. Ákvað ég að reyna þetta, auk þess að mikill niður var í ánni  sem yfirgnæfði öll hljóð eða þrusk og kæmi sér vel fyrir mig. Taldi ég skárra að drösla hrútnum upp og uppgefast við það, fremur en að uppgefast við eltingaleik og tapa hrútnum í björg.

Mér til töluverðar undrunar tókst þetta bragð og greip ég hrútinn. Síðan var þrautin þyngri að koma honum upp úr gilinu. Það tókst samt og var ég örmagna þegar upp var komið.

Eftirleikurinn var auðveldur og setti ég bandspotta í hrútinn og var hann leiðitamur upp á vega þar sem gangnafélagar mínir biðu mín.

Best gæti ég trúað að þessi hrútur hafi verið af Séra Guðmundarkyninu.


Kjarnfóðurskatturinn var dæmdur af

Álagning kjarnfóðurskatts var dæmd ólögleg á sínum tíma. Þar var talað um óeðlilegt framsal valds til ráðherra.

Það er ekki svo að ráðherrar séu vondir menn. En lögfæðin sem stunduð er, virðist oft vera einhver önnur lögfræði en kennd er í Háskóla Íslands og svo er sennilega mikið um hvíslara í ráðuneytum sem segja við ráðherra við skulum hafa þetta svona og svona og skeyta lítið um lögfræði eða stjórnarskrá. Álita mál er hvort kvótakerfi í landbúnaði hafi nokkurn tíman staðist stjórnarskrá.

Ekki fór prófessor Sigurður Líndal fögrum orðum um þetta ,,reglugerðarkraðak" sem hann nefndi svo í riti sínu Stjórnkerfi búvöruframleiðslunnar og stjórnskipan Íslands. Hann gaf því eiginlega falleinkunn með mörgum hörðum orðum.

Landbúnaðarframleiðslunni og byggðamynstrinu og hlutföllum milli bænd var stórlega raskað. Vissulega var nauðsynlegt að tína skussan út úr stéttinn og gera fjósbyggingar betri varðandi aðbúnað dýranna og vinnuumhverfi bændanna. En að það þurfi að byggja fjós sem kosta 1/2 milljarð  er of mikið fyrir gjaldþol neytenda held ég. Það eru miklir vextir sem þarf að borga af slíkri skuld og þarf margar kýr í fjósið bar til að standa undir vaxtagreiðslunum.

Nú leika kaupmenn sér að ráðherra landbúnaðarmála eins og köttur að mús. Og neytendur bíða eftir nýrri ,,leiðréttingu", en auðvitað eru þeir búnir að leggja út fyrir öllum þessum tollum og sköttum.

Nýustu fréttir af tíðarfarinu í Danmörku eru þær að þar vantar 30% upp á að meðaluppskera af korni skili sér vegna þurrka. Á austurströndinni sýndist mér blasa við hallæri vegna fóðurbrests en skárra ástand er á vesturströndinni en undanfarið hefur ringt þar og háarspretta að ná sér á strik. Viðbúið er að vatnskortur geri vart við sig á þéttbýlum svæðum í Evrópu í vetur vegna lágrar grunnvatnsstöðu.

Og svo þegar við verðum komnir með fáar jarðir undir kúabúskap og stórar einingar verður, hrun óáran eða áföll tilfinnanlegri ef eitthvða bjátar á.


mbl.is Telur ráðherra misskilja málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æskuminningar mínar

Hér set ég á bloggsíu mína æskuminningar mínar sem birtust í Húnavökunni riti Ungmennasambands Austur Húnvetninga 49 ár.2009

Æskuminningar

Á vordögum árið 1954 var ég sendur til sumardvalar í sveit, þá átta ára gamall. Ég fór að Syðri-Löngumýri í Blöndudal í Austur-Húnavatnssýslu.

Ég var sendur til vandalausra, hjónanna Guðbjargar Ágústsdóttur og Halldórs Eyþórssonar, sem gerðust svo fósturforeldrar mínir. Ég átti lögheimili á Syðri-Löngumýri frá 1954-1970 og svo aftur frá 1976-1986. Birgir bróðir minn hafði dvalið þar áður, tvö sumur. Hann fórst með vitaskipinu Hermóði í febrúar 1959. Einnig dvaldist Arnbjörn bróðir um nokkurt skeið í Brúarhlíð í Blöndudal.

Mér var aldrei sagt að ég ætti að fara í sveit, það einhvern veginn fréttist bara. Ég man alltaf hvernig ég sagði krökkunum á Óðinsgötunni frá þessu. Ég sagði, þegar ég var spurður, hvert ég væri að fara í sveit: „Ég er að fara að Syðri-Löngumýri í Húnavatnssýslu en ég man ekki hvað bærinn heitir.“ Vissi sem sagt ekkert í landafræði. Ég vissi að ég átti að fara með föðurbróður mínum norður. Hann hét Bergur Arnbjörnsson og var bifreiðaeftirlitsmaður með umdæmi frá Hvalfjarðarbotni norður í Skagafjörð. Hann var kallaður Bíla-Bergur og varð þjóðsagnapersóna í lifanda lífi. Ég man lítið eftir undirbúningi eða brottför og man ekki til þess að hafa kvatt nokkurn mann.

 

Ferðalagið

Faðir minn, Gunnar Arnbjörnsson, fór með mér á Akraborginni upp í Borgarnes en hún sigldi þangað á þessum árum. Þar var Bergur frændi við störf ásamt Geir Bachmann. Þaðan héldum við norður á Willys-jeppa bifreiðaeftirlitsins. Ég man að við stoppuðum í Fornahvammi. Þar var hótel og var hótelstjórinn Páll Sigurðsson, Skagfirðingur, síðar vert í Varmahlíð. Við komum inn í gríðarlega stóran sal að því er mér fannst og þar báru stúlkur fram hádegismat. Fyrst var súpa með brauði, síðan kom aðalrétturinn og kaffi á eftir. Hvítir dúkar voru á borðum og stúlkurnar sem gengu um beina voru í svörtum kjólum með hvítar blúndusvuntur. Þær voru svona frekar hupplegar við gesti. Mér fannst ég skynja það þarna að ég væri í fylgd með höfðingjum.

Upp úr miðjum degi héldum við norður yfir Holtavörðuheiði og var ferðinni heitið að Borðeyri. Þá var sá háttur hafður á að bíleigendur voru boðaðir á ákveðinn stað tiltekinn dag með bíla til skoðunar og lágu refsingar við ef því var ekki hlýtt. Ég man að Holtavörðuheiðin var seinfarin vegna drulluslarka og aurbleytu. Þar var þoka og súld. Á Borðeyri voru bílar bænda skoðaðir. Sennilega höfum við gist einhvers staðar.

Næsti áfangastaður var Laugarbakki í Miðfirði. Bergur hafði þann starfa ásamt bifreiðaeftirlitinu að vera prófdómari vegna ökuréttinda. Á Laugarbakka var einn nemandi sem þurfti að fara í próf. Ég fékk að sitja í við próftökuna. Man ég að nemandinn átti að bakka inn í afleggjara sem var eilítið upp í mót. Þetta reyndist erfitt og tókst ekki fyrr en í þriðju lotu og þá var nemandi farinn að skæla en fékk samt prófið.

Þarna urðu einhver kaflaskipti á ferðalaginu. Allt í einu var Bachmann horfinn en í hans stað var kominn Jón Jónsson, kallaður Jóni í Stóradal í Svínavatnshreppi, sonur Jóns Jónssonar bónda og alþingismanns þar. Jóni var aðlaðandi og skemmtilegur maður. Hann kunni skil á mönnum og málefnum og var mikilvægur samstarfsmaður Bergs. Jóni hafði góða þekkingu á meðferð véla og ökutækja.

Lítið man ég eftir ferðalaginu sem eftir var og man næst eftir mér inni í stofu á Syðri-Löngumýri að borða pönnukökur með rjóma. Þar sat ég ásamt bóndanum, Halldóri, og tveim einkennisklæddum mönnum, þeim Bergi og Jóna en þeir voru alltaf í úniforminu sem var mosagrænn lögreglubúningur ásamt húfu. Var aðallega rætt um landsins gagn og nauðsynjar og stjórnmál. Húsfreyjan, Guðbjörg, gekk um beina og var jafn vel til fara og stúlkurnar á hótelinu í Fornahvammi, þó með öðrum hætti væri.

Þetta ferðalag hefur tekið svona þrjá sólarhringa. Ég fann aldrei fyrir kvíða eða söknuði, aðeins eftirvæntingu. Allt í einu stóð ég þarna úti í vorinu um hásauðburð hjá ókunnugu fólki, með fugla himins yfir mér og heyrði í fjarska lambfé jarma. Ég var kominn í annir og hafði nóg að gera.

 

 

Ástæður sumardvalar

Á þessum tímum var talið sjálfsagt að börn væru send ung í sveit. Hvað mig varðar voru heimilisaðstæður erfiðar. Ég geri ráð fyrir því að sú ráðstöfun að senda mig í sveit hafi verið gerð að undirlagi Bergs, föðurbróður míns. Hann var í góðum tengslum við Jóna í Stóradal. Guðbjörg Ágústsdóttir var alin upp af föður sínum, Ágústi Björnssyni, sem var vinnumaður í Stóradal á dögum Jóns alþingismans. Guðbjörg og Halldór á Syðri-Löngumýri voru barnlaus og þetta hefur verið talin skynsamleg tilhögun við þær aðstæður sem þá ríktu. Þessi sumardvöl varð lengri en upphaflega var gert ráð fyrir og afdrifarík fyrir mig.

 

Heimilisfólkið og störfin

Guðbjörg og Halldór ráku aðalbúið en Eyþór Guðmundsson og Pálína Jónsdóttir, foreldrar Halldórs, héldu sér heimili. Þau síðarnefndu höfðu eina kú og fjárhús á efri hól og þar var einnig hesthús yfir hross sem hýst voru í verri veðrum á vetrum og gefið. Ágúst Björnsson, faðir Guðbjargar, hafði aðstöðu fyrir búsýslu sína í traustum húsum suður af bænum og sá um hrúta og hænsni og hafði hross þar en var í heimili hjá yngri hjónunum. Auk þessa fólks dvöldu á bænum fyrstu sumrin Elín Eyþórsdóttir með dætur sínar, Ingibjörgu og Eygló Pálu Sigurvinsdætur og frænka þeirra, Hólmfríður Svala Jóhannsdóttir.

Samvinna var um margt í búskapnum og flest verk sem kröfðust mannafla. Búskaparhættir voru að mestu leyti sjálfbærir þegar ég kom í sveitina árið 1954. Það var slegið með orfi og rakað með hrífu og ég man að ég var farinn að standa á engi við slátt um fermingu. Mér reyndist þetta létt því ég var kappsamur og fannst mér aldrei misboðið með vinnu, nema einu sinni þegar ég var að raka á engjum og leiddist það. Ég vildi fara að skoða fugla og sól var í heiði og tíbráin óendanleg. Tók ég þá til þess ráðs að brjóta hrífuna og losna þannig frá rakstrinum.

 Þegar ég kom að Syðri-Löngumýri var komin hestarakstrarvél og hestasláttuvél. Ég man að klárinn, sem nota átti við rakstrarvélina, fældist alltaf svo að ég var látinn sitja á vélinni en klárinn teymdur af fullorðnum. Ég man eftir að hey var flutt á hestum af engjum í tvö sumur. Á heimatúni voru heysátur dregnar á hestum annaðhvort á böndum eða sleða til tóftar. Síðan kom Farmall Cub og svo þróaðist tæknin hægt og sígandi. Kubburinn kom í kössum og Sigurgeir í Stóradal setti hann saman af sínu alkunna hyggjuviti og þótti mér furðulegt hvernig hann gat það.

 

Syðri-LangamýriBærinn á Syðri-Löngumýri

Syðri-Löngumýrarbærinn var burstabær, upphaflega með þrem burstum, byggður 1860 að ég held. Hann stóð á hól u.þ.b. 200 metra frá núverandi þjóðvegi og sneri til austurs. Syðra burstahúsið samanstóð af austur- og vesturhúsi og miðbaðstofu. Þessi hluti var allur viðarklæddur í hólf og gólf af vönduðum við. Miðburstin samanstóð af stofu sem sneri fram á hlað, björt og rúmgóð. Þar fyrir innan var eldhús sem var viðarklætt en vestast var geymsla fyrir búsáhöld, amboð og reiðtygi og var hún óþiljuð. Milli þessara bursta var þiljaður gangur inn í bæinn. Syðra burstahúsið stóð á upphækkun, væntanlega hugsað til að verjast gólfkulda. Búið var að rífa þriðju burstina sem var skemma en þar fyrir innan var köld geymsla fyrir súrmat og þar innaf var eldhús. Bærinn bauð af sér góðan þokka, var vandaður og kyntur upp með þurrkuðu taði og kolum.

Í skjóli fyrir sunnan bæinn var kartöflu- og rabbabaragarður sem mikið var notaður. Einnig uxu þar kryddjurtir, svo sem kúmen og graslaukur. Milli fjóss og bæjar var haganlega gerður brunnur sem vatn þraut aldrei í. Hann var aflagður um það leyti sem flutt var í nýtt hús 1957. Árið 1977 hreinsaði ég brunninn upp en þá var hann kominn í vanhirðu. Brunnurinn er um 3 metra djúpur, þvermál neðst 0,6 metrar og efst 1,8 metrar (þetta er eftir minni). Hann er vel hlaðinn úr grjóti og neðst í botni brunnsins er ávalur steinn. Hygg ég að vatnið hafi verið ræst frá uppsprettunni á meðan á hleðslunni stóð en fyrir framan er töluverður halli. Síðan hefur fráveitulögnin verið stífluð þegar verkinu hefur verið lokið. Brunnurinn var stráheill þegar ég fór niður í hann 1977.

Vindrafstöð var fyrir ofan bæinn, töluvert mannvirki, en var óvirk þegar ég kom þarna fyrst og ekki notuð. Reyndar hafði eitthvert átak verið gert í vindrafstöðvarmálum í hreppnum því víða voru þessar myllur uppistandandi og sums staðar í lagi. Fremst á hlaðinu var stór hestasteinn, 50x130x80 cm og á honum stóð, að mig minnir, ártalið 1860 sem er sennilega byggingarár bæjarins.

 

Vistfræði Syðri-Löngumýrar

Hnattstaða jarðarinnar er 65 gráður og 29 mínútur N og 19 gráður 52 mínútur V og hallar jörðin í móti austri. Jörðin er u.þ.b. 6 ferkm. Hún á merki við Höllustaði að sunnan, Stóradal að vestan, Ytri-Löngumýri að norðan og Brúarhlíð og Blöndudalshóla að austan en þar rennur Blanda á merkjum. Eftir jörðinni renna upprunalega þrír lækir. Merkjalækurinn rennur milli Syðri-Löngumýrar og Höllustaða, alveg frá Grámannsflá og niður í Blöndu. Tveir lækir renna niður frá efri brúnum norðan við miðju jarðarinnar og afmarka bæjarstæðið og eldra túnstæði. Þar hefur verið þurrast á jörðinni.

Eins og nafn jarðarinnar ber með sér er hún mýrlend og votlend, en inn  á milli eru vallendismóar, börð og brúnir. Í 250 metra hæð yfir sjávarmáli tekur við þróttmikill fjalldrapi og samfelldar hálfdeigjur sem enda svo í Stóradalshálsi, eða svokölluðum Hálsi, sem er efsti hluti jarðarinnar. Þar uppi, sunnan við miðju jarðarinnar nær svokölluðum Lækjum, eru Kirkjuhólar. Jurtaflóra jarðarinnar var fjölskrúðug. Við plöntusöfnun vegna náms míns við búvísindadeildina á Hvanneyri, á árunum 1968-1970, safnaði ég  mörgum plöntutegundum á jörðinni en hef ekki gögn um fjölda tegunda sem vaxa þar.

Í Blöndudal er veðursæld. Þó getur verið allhvöss SV átt á Syðri-Löngumýri. En oft er blíðviðri vor og sumar. NA-átt er ríkjandi vetrarátt með skafrenningi upp mýrarnar. Norðanstórhríð getur staðið allt upp í viku. Stillur og hægviðri eru þó oft ríkjandi á vetrum. Á sumrum í sunnanátt má oft búast við síðdegisskúrum. Oft er dalalæða á kvöldin, vor og sumar. Fuglalíf var mikið, bókstaflega allt morandi af spóa, lóu, hrossagauk, lóuþræl og stelk. Maríuerla var við hús og bæi, þúfutittlingur við gilskorninga og börð og steindepill í grjóti. Rjúpur gerðu sér hreiður hið efra í fjalldrapanum. Síðan sveimuðu hrafn og smyrill yfir. Í norðurhluta Hálsins í Klaufinni, þar sem heita Högg, var lágfóta með greni og þar var einu sinn mjög óvænt skotinn minkur. Það gerði Ólafur Sigurjónsson frá Rútsstöðum og hló lengi dags að því með miklum bakföllum.

 

 

Matarmenning

Dagurinn byrjaði með því að maður fékk kaffi og kleinur eða jólaköku, ástarpunga eða parta. Klukkan tíu var borðaður hafragrautur með slátri. Á hádegi var heitur matur, æði oft siginn fiskur, þunnildi og kinnar. Þá var saltað hrossakjöt mikið borðað, reykt tryppakjöt, bjúgu,  kjötkássur, ærkjöt og þannig væri lengi hægt að telja. Venjulega var hrísgrjóna- eða sagógrjónagrautur með saft eða skyri á eftir eða rabbabaragrautur, stundum með rjóma.  Oft var kjötsúpa eða saltkjöt og baunir. Milli klukkan þrjú og hálffjögur var kaffi með sama kaffibrauði og á morgnana en þá frekar smurt brauð með í bland, t.d. brauð með kæfu eða öðru áleggi, heimaunnu, svo sem egg og hangikjöt. Um heyskap var auka kaffitími klukkan sex, hið sama og hálffjögurkaffið. Klukkan hálfníu, þegar hætt var vinnu á sumrin, var kalt borð, þ.e. súrmatur, slátur, lundabaggar, svið, sviðalappir, hrútspungar, rúgbrauð með miklu sméri, afgangar frá hádeginu og alltaf hafragrautur eða hræringur. Alltaf var drukkin mjólk með matnum.  Fóstra mín var afskaplega dugleg og útsjónarsöm við alla matargerð, hvort sem var daglega eða til vetrarins. Hún var húsmæðraskólagengin sem þótti góð menntun.

 

 

Frístundir og leikir ú

Maður átti oft frístundir í sveitinni. Bæði tók fólkið sér góðan lúr í hádeginu og þá lék maður sér og svo ef komu verkeyður. Einnig hafði maður góðan tíma þegar rigning eða blautt var um. Ég, ásamt hinum börnunum á bænum, áttum bú skammt frá bænum og þar voru leggir og kindakjammar aðalbústofninn. Maður batt snæri í hrossaleggina og þeyttist svo um þúfur og bala í reiðtúra. Helstu leiksvæði  okkar voru í stórum þúfum skammt frá bænum. Ég man einnig eftir fyrsta skurðgröfuskurðinum sem grafinn var á jörðinni. Þar hófust miklar framkvæmdir hjá mér sem stóð í nokkur misseri. Hundarnir voru vinir manns og kettirnir nærtækir en alltaf hélt maður með hundinum ef til átaka kom milli hans og kattarins. Maður hafði nokkuð frjálsan aðgang að hestunum og var að hnoðast með þá. Síðast en ekki síst hafði ég gaman af öllum fuglum, merkti hreiður þeirra og fylgdist með öllum lífsháttum þeirra.

            Hestar voru mikið notaðir við smalamennskur. Útreiðar voru dálítið stundaðir og ég man að ég var tekinn með á svokallað nítjánduhelgarball í samkomuhúsi sveitarinnar, Dalsmynni, og var teymt undir mér. Það gerði Ágúst Björnsson, faðir Guðbjargar, og á heimleiðinni var draugamyrkur. Karlmennirnir á heimilinu voru náttúrusprottnir hestamenn, höfðu tilfinningu fyrir gangþýðum hrossum og fallega ásetu. Sú reynsla með þeim hefur verið mér gott veganesti.

Nokkur samgangur var við börn á öðrum bæjum. Ég man að farið var í einhverja könnunar- og rannsóknarleiðangra, þá var spilaður fótbolti og farið að veiða. Svo eignaðist ég hjól og fór í hjólatúra með æskufélaga mínum, Jóni Sigurgeirssyni í Stóradal síðar Stekkjardal.  Ég samlagaðist samfélaginu og varð fljótt hluti af því og undi hag mínum vel.

 

Farskólinn

Farskóli var í Svínavatnshreppi þegar ég ólst þar upp. Skólinn var þá á ákveðnum bæjum og komu börnin þangað og var kennt þar. Stundum gengu börn heiman frá sér ef skólinn var á næsta bæ. Farskólinn skiptist í yngri- og eldrideild. Skólaskylda í dreifbýli var frá 10 ára aldri til fermingar. Kennt var að mig minnir 3 vikur í senn og verið svo heima á meðan hinni deildinni var kennt.

Við Guðrún Björnsdóttir frá Ytri-Löngumýri fengum að fara einhvern tíma þegar við vorum 9 ára í skólann á Auðkúlu. Þá var Guðmundur Klemensson frá Bólstaðarhlíð kennari.

Ég minnist þess að Pálína Jónsdóttir á Auðkúlu, las fyrir okkur námsefnið vegna þess að við vorum ekki orðin vel læs. Með þessari aðferð gátum við fylgst með í kennslustund. Þvílík upplifun að láta lesa fyrir sig við olíulampa  á löngum vetrarkvöldum, þetta voru náttúrlega alger forréttindi.

 Á Höllustöðum var farskóli, þá hjóluðum við Jón Sigurgeirsson, saman, frá Syðri-Löngumýri fram eftir, en vegalengdin er svona 2 km. Stefán Á. Jónsson frá Kagaðarhóli var þá kennari. Hann er snyrtimenni og ágætur kennari en svolítið strangur að mér fannst.

Þennan vetur var haldin norræn skíðaganga sem allir máttu taka þátt í og var vegalengdin 2 km. Stefán kennari mældi vegalengdina samviskusamlega og gengum við að ég held flest þessa göngu. Ég man að eitthvað gekk þetta böxulega hjá Jóhanni Guðmundssyni frá Holti og endaði hann í markinu á einu skíði. Voru nú uppi miklar efasemdir hvort gangan hefði verið lögleg hjá Jóhanni. Endaði málið svo að Stefán úrskurðaði gönguna löglega.

Eitt sinn var ég að fara einn á hjóli í skólann. Krapi var á veginum og sé ég að Guðrún á Ytri-Löngumýri stikar  á mikilli ferð fram eftir. Taldi ég að fljótt mundi draga saman með okkur, hún gangandi en ég þessi riddari á hjóli. Aldrei dró ég hana uppi, frekar dró í sundur með okkur. Guðrún hló þegar við vorum komin að Höllustöðum en ég var vonsvikinn yfir að stelpa gengi hraðar en ég hjólaði.

Ég var líka í farskóla á Snæringsstöðum í Svínadal. Þá var kennari Jósep Jóhannesson frá Giljalandi í Dölum. Hann var traustur kennari og lagði áherslu á að við segðum  þökk fyrir matinn en ekki dönskuslettuna takk. Hann kenndi leikfimi sem fólst í því að gera armbeygjur og ýmsar æfingar. Var þetta gert inn í stofu og þætti sá leikfimisalur lítill nú. Heimilisfólkið hlustaði á útvarp saman á kvöldin. Svo þegar kom að Passíusálmunum ætluðum við að rjúka út úr stofunni en þá sat Jósep við dyrnar og setti löppina fyrir okkur og urðum við að halda kyrru fyrir uns lestri var lokið. Jósep vakti áhuga okkar og annarra á skákíþróttinni og blómstraði hún í Svínavatnshreppi á þessum árum. Þorsteinn Sigurjónsson á Hamri var og mikill drifkraftur í skákmálunum. Mér fannst svolítið skrítið á þessum árum hve margir hétu sama nafni og ég í sveitinni. Við vorum níu Þorsteinar í Svínavatnshreppi.

Veturinn 1958-1959 var ég í farskóla á Snæringstöðum og Syðri-Grund. Þá var kennari Dómhildur Sigurðardóttir frá Draflastöðum í Fnjóskadal. Hún var um tvítugt, væn kona og þægilegur kennari. Þennan vetur lenti ég í mikilli sorg þegar vitaskipið Hermóður fórst 18. febrúar. Bróðir minn, sem hafði farið í afleysingartúr sem matsveinn, var þar um borð.Vitað er að Hermóður hafði lagt í Reykjanesröstina í mjög versnandi veðri. Og eftir það var ekkert vitað um skipið. Nú eru taldar líkur á því að skipið hafi komið laskað úr Röstinni, því flakið af því er í Faxaflóa. Skólasystkini mín og heimilisfólkið á Syðri-Grund lögðust á eitt að gera mér lífið bærilegt. Þessi vetur var að öðru leyti góður og lauk ég þá um vorið barnaskólaprófi, ári áður en til var ætlast samkvæmt lögum.  

Árið eftir, 6. júní, fermdumst við síðan í Svínavatnskirkju, æskufélagarnir og vinir, Erlingur Ingvarsson á Ásum, nú skógarbóndi á Hamri. Æskunni var lokið og unglings- og fullorðinsárin tóku við.

 

Ég hef nú hér rifjað upp æskuminningar mínar, getið æskuheimilis míns og umhverfis. Gamalt máltæki segir að fjórðungi bregði til fósturs. Hægt er að fallast á það. Ég er fæddur  að Stað í Skerjafirði, er Strandamaður og Ísfirðingur í móðurætt og Borgfirðingur og

Skaftfellingur í föðurætt. Glöggir menn geta þó séð ýmsa húnvetnska takta í mér þar sem áhrif uppeldis og umhverfis í víðu samhengi gætir.

Þegar ég lít til baka eru bernsku- og æskuminningar mínar á rósrauðu skýi og bera við himinblámann yst við sjónarrönd.

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband