Vökulögin og Vinnueftirlitið

Vökulögin er um það bil 90 ára gömul. Þau voru sett til að tryggja sjómönnum lágmarkshvíld og tryggja öryggi, svo sem að þeir féllu ekki sofandi útbyrðis í vondum veðrum með  snærishönk um hálsinn eða löppina í netadræsu.

Vinnueftirlit ríkisins var sett á fót til að tryggja samskonar hagsmuni og vökulögin.

Í mjög langan tíma hefur það viðgengis að Alþingi hefur ekki virt þá hagsmuni, sem það hefur sjálft sett lög um að virða hvíldartíma alþingismanna.

Hverjum manni er það fullljóst að Alþingi er ekki hefðbundinn vinnustaður og lítur ef til vill ekki sömu lögmálum og aðrir vinnustaðir.

Alþingi er fundur eða samkoma. Eigi að síður eru þar til lykta leidd alvörumál sem geta varðað hagsmuni margra. 

Þess vegna er rétt og skylt að alþingismenn fljóti ekki sofandi að feigðarósi í störfum sínum og njóti hvíldar. Hætt er við að mistök geti orðið við lagasetningu og ákvarðanatöku ef ekki verði ráðin hér bragarbót á málum. Af þeim sökum væri rétt fyrir Vinnueftirlitið ríkisins  að koma við á Alþingi og kanna aðstæður um hvíldartíma fólks.


mbl.is Þingfundur þar til mælendaskrá er tæmd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Hvað annað er hægt að gera þegar stjórnarandstaðan heldur afgreiðslu brýnna mála í gíslingu eins og aðstæður þjóðfélagins eru nú um stundir.

Þarna er verið að bjarga verðmætum og þá má gera undantekningu.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 3.12.2009 kl. 00:58

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Svo mun þetta vera valfrjáls viðvera Alþingismanna sem sjómenn og verkafólk höfðu sjaldnast.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 3.12.2009 kl. 01:03

3 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Jú, Hólmfríður þetta eru allt snúin mál og stundum erfitt að fá niðurstöðu.

En ég sem þiggjandi löggjafar og farandi eftir henni geri kröfum að menn séu skýrir í kollinum þegar löggjöf er frágengin og allar ákvarðanir samþykktar.

Ekki svefndrukknir alþingismenn.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 3.12.2009 kl. 07:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband