Nýr Gamli sáttmáli

Þeir eru iðnir við kolann Framsóknarmennirnir. Þeim er full alvara með þessum lántökum hjá Norðmönnum.

Það má ef til vill segja að Framsóknarmenn í stjórnarandstöðu séu einu mennirnir sem starfa samkvæmt stjórnarsáttmálanum nú um stundir.

Norrænt velferðarkerfi, norskir peningar, ekki EvrópuIsaesave.

Við eigum allmikla sameiginlega hagsmuni með Norðmönum hér á Norður-Atlandshafi og að ráða þar mannaferðum ef til ótíðinda dregur svo og auðlindahagsmunir.

Samband okkar við Norðmenn þróaðist ekki á sínum tíma vegna þess að við lentum fljótlega undir Dönum.

Ef til vill endar þetta einhvern veginn  þannig að Bessastaðir verði losaðir úr ábúð og hér komi norsk-íslenskur landstjóri?

Og hirðmenn verði hér við hvert fótmál. Og útrásarvíkingarnir verða sendir til Ameríku eins og

Leifur heppni og friður færist yfir landið.


mbl.is Mikill velvilji í garð Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband