Persónuleg óvild í stjórnmálum barnaleg og lýsir þroskaleysi

Ég var í sveitinni um daginn og menn voru bara glaðir yfir því að hafa eignast 2 Framsóknarflokka en máttu nú lítð vera að því að spjalla vegna anna við að breyta fjósum og undirbúa sig undir veturinn.

Í þéttbýli er svo sem engin sérstök kæti yfir 2 Framsóknarflokkum hingað til hefur einn stór Framsóknarflokkur dugað og oftast verið afsprengi misvægis atkvæða. Það er svo sem ekkert nýtt í pólutíkinni að menn hafi átt erfitt með að tala saman þegar komið er að því að setja saman ríkisstjórn. Þá kmur upp hver á að vera í forsæti. Svoleiðis aðstæður mynduðust árin 1950-53. Stirðleiki milli Ólafs Thors og Hermanns Jónassonar gerði þeim erfitt fyrir að sitja í ráðuneyti undir forsæti hvor annars. Þess vegna var Steingrímur Steinþórsson búnaðarmálastjóri kallaður til ofan úr Búnaðarfélagi Íslands og beðin um að verða forsætisráðherra af hálfu Framsóknarmanna í samsteypustjón Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á árunum 1950-53.  Svona er oft hægt að leysa málin.

Það er náttúrlega gott að bændur gleðjist en það yrðu nú erfitt fyrir þá að sitja landið ef þetta talsambandsleysi yrði að venju í sveitum lndsins. Þess vegna gefa þessir forustumenn ekki gott fordæmi öðrum smákóngum.

Þessi útkoma þeirra í kosningunum er undraverð satt að segja, Framsókn vinnur mjög góðan varnarsigur sem kemur vissulega á óvart.

Hitt var auðvelt að bjóða bara fólki hlut í banka og fá drjúgt fylgi út á það, en er það kannske betra en að láta ræna bankana.

Hrafnkell Freysgoði lenti í miklu málaskaki austur á landi  (Hrafnklssaga Freysgoða ) og var háður svokallaður féránsdómur yfir honum eftir að hann drap smala sinn og missti hann allt sitt. Í þeirri sögu kemur berlega í ljós hversu framkvæmdavaldið var veikt, því dómhafar urðu að fá aðkomumenn til a fullnusta dóm yfir Hrafnkatli. En Hrafnkell gerði það sem á að gera þegar menn lenda í svona aðstæðum, lífsháska og deilum. Hann var glaður og brattur heilsaði öllum ætíð með handabandi og talaði við alla. Af því má ýmislegt læra.

Í þessum kosningum hafa ekki heyrst af því sögur að kosningasmalar hafi farist.


mbl.is Sögulegt símtal Sigmundar og Sigurðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband