Skynsamlegt að byggja nýtískulegan og fallegan skóla

Allir sem ég hef talað við telja best og farsælast til lengri tíma litið að byggja nýjan skóla. Annað sé ekki í stöðunni.

Þegar mygla er kominn í byggingar er erfitt að ná að eyða henni.

Allt klastur og endurbygging er fúsk. Með því að byggja nýjan skóla er grunnurinn allgerlega hreinsaður og hægt að endurbyggja og skipuleggja lóðina sem er ekki síður mikilvægt.

Í minni fjölskyldu eru tvær kynslóðir búnar að vera í skólanum, Þar af einn fv skólastjóri, sem telr sig hafa margskonar reynslu. Hann fussar og sveiar yfir því ef stjórnvöld bæjarins ætla sér að vera með einhverja kofastarfsemi.

Nýr Kársnesskóli takk, með fallegum arkitektúr inn í 21 öldin.


mbl.is Viðgerð eða niðurrif Kársnesskóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Nei það er of mikill stórhugur. Það er enginn vandi að þurrka þessar byggingar og laga þær. Þessi Efla er gersamlega kostnaðarblint fyrirtæki og skrifar þau álit sem beðið er um sbr. flugvallarúttektina. Ég held að þeir ættu að fara í innhverfa íhugun af virðingu við verkfræðistéttina æi heild. Verkfræðingar eiga ekki ekki láta nota sig í pólitík.

Halldór Jónsson, 14.5.2017 kl. 00:22

2 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Halldór viltu ekki bara taka þetta mál fyrir næst á félagsfundi hjá Verkfræðingafélaginu?

Það hlýtur nú að vera hægt að byggja einn barnaskóla eins og hótel á Kársnesinu eða hvað?

Þorsteinn H. Gunnarsson, 14.5.2017 kl. 07:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband