Afhverju er gengið fram hjá hinum lögboðnu ítölunefndum?

Það er furðulegur kultur að ganga fram hjá hinu lögboðna ferli sem eru ítölunefndir, en setja hagsmunaaðilan í öndvegi.

Svona vinna ætti að vera algerlega fræðileg og lúta, án íhlutunar hagsmunaaðilans, fræðunum, en þessir pólar sem óhjákvæmilega skarast við þetta fyrirkomulag og úr verður eitt eilífðarbál.

En sauðfjárbændur eru snillingar að koma ár sinni fyrir borð og fá sitt framm með seiglu sauðkindarinnar.

Dæmi:1. 100 milljónir í útflutingsbætur þegar búið var að afnema þær fyrir löngu.

2. Gátu talið sérfræðingum um langahríð trú um að um smitsjúkdóm eða eitthvað væri að ræða þegar um vanfóðrun átti sér stað vor eitt fyrir skömmu  sem nýlega hefur verið staðfest að var máttleysisveikin. Ekki kæmi mér á óvart að Bjargráðsjóður hafi hlaupið undir bagga í því máli.

3. Svo núna er varaformaður sauðfjárbænda settur í forsæti til að stjórn þessari nefnd, með alla þræði í höndum sér að meta gróðurfar á Íslandi.

Vitlausara getur þetta ekki verið.

 


mbl.is Meta gróðurauðlindir Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband