Enn veldur lausagangan sauðfjár fólki skaða.

2012-09-02_14_10_25_1263584.jpgSamkvæmt minni reynslu eru Siglufjarðarrollurnar með þeim allra frekustu og leitt að heyra að látnir fá ekki að hvíla í gröfum sínum fyrir ágangi þeirra.

Eitt sinn  var ég á ferð í geng um þetta svæði og varð að smala Siglufjarðargöngin út svo ég kæmist í gegn um göngin slíkur var mökkurinn af rollum í göngunum.

Þetta á bara eftir að versna og nú er Herdís Þorvalds öll og getur ekki staðið vaktina hérna megin jarðlífs og öllum er víst sama hvernig þessi mál ætla að þróast hjá okkur.

2012-09-02_14_11_09_1263585.jpgEitt sinn var ég í heitapottinum á Hveravöllu og þá lá rolla á bakkanum og skeit í pottinn. Það er nú vegsauki fyrir land og þjóð slíkar upp á komur, eða hitt þá heldur. Hvar í heiminum annarsstaðar liðist slíkt?

Þetta mál þarna í kirkjugarðinum er nú á valdi ættingja hinna látnu að leysa. Bara fara í sjálafboðavinnu  og leysa málin sjálf. Í mörgum smærri sveitarfélögum sér fólkið um þetta sjálft. Verkum var bara skipt niður á bæina í minni sveit eins og fjallskilum.

Engi kostnaður bara vellíðan og ánægja.


mbl.is „Fólki er ekki sama“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband