Ókyrrð í lofti

Það þarf sterkar taugar að vera flugstjóri við svona aðstæður. En aðstöðumunurinn milli flugstjórans og farþeganna er mikill, flugstjórinn veit hvað er að gerast og getur nokkru ráðið en farþegar halda að hinsta stund sé upprunnin og vélin að farast. Hef einu sinn lent sem farþegi í mikilli ókyrrð. Og var það í síðasta flugi Arngríms Jóhanssonar sem flugstjóra frá Havanna á Kúpu til Keflavíkur.

Ég man að vélin virtist bylgjast til, þegar hún var að fara í gegn um þetta. Karlinn var arfaslakur og ræddi við farþegana í geng um hátalarakerfi vélarinnar og bauð upp á kampavín í tilefni að hann var að hætta vegna aldurs.

Og þá tóku farþegar gleði sína og róuðust.


mbl.is Skelfing greip um sig meðal farþega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég gat nú ekki séð neinn slasast á þessari upptöku. En vera má að einhver hafi fengið hjartaáfall. Hvað mig varðar, þá hefði ég dáið strax, ef ég hefði verið á þessu flugi.

Pétur D. (IP-tala skráð) 21.12.2014 kl. 14:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband