Verður forseti Íslands, jarl yfir Íslandi?

28. júlí 2014

Norska konungshöllinnForseti Stórþingsins

Forseti á fund með forseta norska Stórþingsins sem heimsótt hefur Ísland undanfarna daga og tekið þátt í hátíðardagskrá í Reykholti og Sturluhátíð í Dölum. Rætt var um sameiginlega sögu Noregs og Íslands, uppbyggingu í Reykholti og þátttöku Norðmanna í henni sem og mikilvægi sagnaarfsins fyrir norrænar þjóðir. Þá var einnig rætt um ný verkefni í norrænni samvinnu, sem þróun Norðurslóða hefur í för með sér, og mikilvægi þess að efla styrk Norðurlanda á þeim vettvangi, einkum í ljósi vaxandi áhuga ríkja í Asíu og Evrópu á Norðurslóðum. Norski fáninEinnig var rætt um viðbrögð Norðmanna undanfarna daga vegna hugsanlegrar hryðjuverkaárásar og þær breytingar sem vöxtur hryðjuverkahópa gæti haft í för með sér.

Heimild:Vefsíða forseta Íslands

Ætli forsetinn hafi nokkuð rætt um nýjustu fréttir úr stjórnmálaheimi á Íslandi að við gerðumst 20. fylki í Noregi. Það er ómögulegt að segja hvað hvíslað hefur verið við útidyrnar að fundi loknu. Ef til vill orð nóbelskáldsins;,, Þú mátt nefna nafn mitt liggið þér mikið 2014-06-26_10_51_22.jpgvið". Það er margt brallað sem fer hljótt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Nema það verði Steingrímur eða Jón Bjarnason, hann er Noregslærður, varla verður það Geir Haarde, þó veit maður aldrei.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 28.7.2014 kl. 17:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband