Leyndardómur húmorsins

KirkjaForseti Íslands hefur farið víða um lönd undanfarið og kemur hann þá gjarnan að máli við fjölmiðlamenn og segir eitthvað mikilsvert um íslensk málefni. Oft er eitthvað haft efir honum í Bloomberg fréttaveitunni.

Þetta er alveg nýtt form hjá forsetanum á samræðum við þjóðina enda verður hann að vera frumlegur og skapandi sem doktor í stjórnmálafræðum. Þjóðinni hefur að því er virðist líkað þetta vel enda er margt miklu merkilegra sem sagt er frá útlöndum en hér heima. Maður man t.d. þegar Axel Thorsteinsson fréttamaður RUV, sagið fréttir klukkan átta á morgnana í gamladaga;

,, Nú verða sagðar Lundúnafréttir".

Nú hefur borgarstjórinn í Reykjavík tekið sama hátt upp eftir forseta og reifað skoðanir sínar um Icesave frá Vínarborg þar sem hann skrapp á bíó á meðan borgarstjórn er að ræða um barnafræðslu og skólamál í Reykjavík.

En þá bregður svo við að allir verða óánægðir og fara kalla borgarstjóra, kjána og bjána, nefna málið bull, þvælu og dómgreindarleysi.

Þegar ég gerði mér grein fyrir þessum nýja stíl forsetans og hliðstæðu borgarstjórans og samhenginu fór ég bara skellihlæja.

Vitanlega gerir borgarstjóri bara eins og forsetinn. Menn verða tolla í stjórnmálatískunni ef á að halda kjörfylginu.

,, Nú segir borgarstjórinn Vínarfréttir".


mbl.is Bölsýnn borgarstjóri í Vín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband