Tómarúm í Sjálfstæðisflokknum og 1/2 jólakveðja úr NVkjördæmi

Þorsteinn Pálsson fv. formaður Sjálfstæðisflokksins og fv. forsætisráðherra segir að það sé tómarúm í Sjálfstæðisflokknum og svo hefur verið talað um nýjan flokk.

Nafni gaf það út að hann er ekki á leið út  í stjórnmál að nýju eins og Jón Baldvin er búin að vera síðasta áratug liðinn aldar.

Margir þingmenn sendu landsmönnum jólakveðjur í útvarpinu og yfir leitt sameinuðust þingmenn hlutaðeigenda flokka um að vera saman með kveðjuna.

Eftir því var tekið að þingmenn Framsóknarflokksins í NV kjördæmi voru ekki saman á jólakveðjunni þegar hún var lesin upp á Þorláksmessu í Ríkisútvarpinu. Aðeins var lesið nafn Gunnars Braga Sveinssonar, en nafn Guðmundar Steingrímssonar vantaði.

Hvort hann hafi setið á hljóðskrafi með Degi B. Eggertssyni Samfylkingarmanni og vini sínum vita menn ekki. Guðmundur var Samfylkingarmaður áður en hann gekk í Framsóknarflokki og bauð sig fram í NVkjördæmi. Eða Gunnar hafi ekki viljað hafa með sér er óupplýst.

Þannig það er allt að gerast í pólitíkinni. En verst finnst mér þetta með tómarúmið í Sjálfstæðisflokknum.

Er ekki hægt að skýra það þannig að stórt svæði innan flokksins sé mannlaust? Tómarúm er ekki neitt.

Ríkistjórnin hefur aftur á móti 32 Alþingismenn á bakvið sig eins og við blasir.


mbl.is Telur óvíst að stjórnin lifi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband