Saungfuglinn

Það er ánægjulegt að þessi mikli saungfugl stendur nú á fertugu.

Hann hefur fært þjóðinni sinni gleði og stuð t.d. á 17. júní og fleiri atburðum þar sem Íslendingar koma saman til að gleðjast.

Varðandi klámið er því til að svara að það hefur alltaf verið til staðar.  Ég hef staðið við slátt á engjum með tveim gömlum mönnum og þar var farið með dýrt kveðnar klámvísur sem styttu daginn og gerðu hann skemmtilegan.

Nú þegar heldur þyngist fyrir fæti hjá þjóðinni er ekkert mikilvægara en að eiga saungmenn sem geta haldið uppi fjörinu með vikivökum og rímnakveðskap og slíkri saunglist í bland við annað nýrra. 

Ég óska þér til hamingju með afmælið Páll minn og hafðu það ævinlega sem best og komdu eilíflega fagnandi þar sem þjóðin er að skemmta sér hverju sinni.


mbl.is Páll Óskar varð fangi klámsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Þráði Loft og þurfti Loft

þung af Lofti var hún.

Upp á lofti, upp í loft

undir Lofti var hún.

Óþekktur höfundur.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 13.3.2010 kl. 10:06

2 identicon

hahaha góður.

CrazyGuy (IP-tala skráð) 13.3.2010 kl. 11:50

3 identicon

Páll Óskar á skilið jákvæða umfjöllun.  Hann er mikill stuðbolti og kemur fólki alltaf í gott skap á skemmtunum og sérstaklega á böllum. Hann hefur verið brauðryðjandi í umræðu um samkynhneigð og sennilega oft hjálpað ungu fólki í vanda með sjálfsmyndina. Hann hefur alltaf verið opinskár í umræðu um sjálfan sig nema ástalífið en ætlar að ræða það í Mogganum á morgun.  Þá  er bara að kaupa Moggann og lesa .........
Tóta

Tóta (IP-tala skráð) 13.3.2010 kl. 14:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband