Er þetta ekki ljómandi gott tilboð?

Er þetta ekki gott tilboð, jafnvel betra en í riðuniðurskurði.

5 ára aðlögun.

Það er eftirspurn eftir því að koma börnum í sveit, þar liggja sókartækifæri sveitafólks til að hafa eitthvað fyrir stafni og skapa sér atvinnu. Þá er það ekki ósanngjarnt að fá aðstoð við að sækja vinnu utan bús.

Bloggari fór með barnabarn sitt í sumar á eitt slíkt setur. Þar voru kanínur, hænsni, refur og hvað eina og börnin voru alsæl og örugg í vélalausu umhverfi. Að vísu voru gamlir antiktraktorar á hlaðinu sem voru mikið setnir.

Svo gátu röskir strákar og stelpur spreitt sig á að moka hesthúsið undir eftirlit. Allt þetta getur leitt til þroska og vellíðunar hjá borgarbörnum og leitt til tengsla við sveitina. Það sem mér fannst helst vanta var skipulögð fræðsla um lífið og tilveruna.

Svo er það próventan, hið gamla íslenska fyrirbæri. Það mætti innleiða hana í stórum stíl. Það veit auðvitað engin hvað það orð þýðir og fólk verður þá bara að fara í orðabækur.

Við verðum að hafa innkomu í sveitina ef það verður stríð. Í seinni heimstyrjöldinn var börnum komið fyrir með massífum hætti upp í sveit, vegna styrjaldarhættu.

Nauðsynlegt er að rækta samband  milli borga og bæja og sveitarinnar til að auka víðsýni á kjörum og starfi stétta á milli.

 


mbl.is Þeir sem hætta strax fá greitt í fimm ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. september 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband