Bændur sýna leikarahæfileika, og ríða í litklæðum um landið

Þingvallaferð Fáks 8-10 júní 028Eitt sinn var bloggari í hestaferð með hestamannafélaginu Fáki. Komið var niður í Fljótshlíð af Fjallabaksleið syðri og var riðið þar sem heitir Goðaland og áð þar.

Bloggari hafði heyrt það að í Fljótshlíðinni væri byggð farin að grisjast hvað varðaði hinna hefðbundna atvinnuveg landbúnað, en tómstundabúskapur að vaxa og væru ríkir kallar að eignast jarðir þarna.

Nú,nú rétt í því að þessar hugsanir fara í gegn um höfuð viðkomandi ekur þá ekki dráttarvél MF 135 með heyþyrlu aftan í gamla og lúna, fram hjá og svona bóndalegur karl við stýrið. Þó ekki Gunnar Hámundason.

Hress og glaðurBloggari segir þá stundarhátt: ,, Nú það eru þá bændur bara hér á hverju strái." Þá heyrðist sagt : ,,Nei, nei þetta er ekki bóndi."    ,,Nú hvað er þetta þá." ,,Þetta er leikari sko sem er að leika bónda því það eru engir bændur hérna".

Auðvitað ættu bændur að ríða í litklæðum annað slagið niður Fljótshlíð.

Þegar komið var í Landmannahelli hugleiddi bloggari að gaman væri að hitta þar útilegumann með hyski sitt og búnað, en þar var bara sauðatað og vanhirt svæði.

Svona eru tímarnir spennandi og tækifærinn við hvert fótmál og nefnd að endurskoða búvörusamninga og eitthvað hlýtur að koma út úr því, peningar eða leikarastöður.


mbl.is Eins og fortíðardraugar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 30. ágúst 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband