Hræddir menn í stjórnarráðinu

Þetta var skemmtileg og fróðleg lesning og oft hefur mætt mikið á starfsmönnum Landhelgisgæslunnar, enda búnir að lifa margskonar átök og yfirtöku á togurum og fengið á sig ásiglingar.

En voru þeir einhverntíman hræddir?

Guðmundur Kjærnested skipherra, var eitt sinn í útvarpsviðtali að segja frá atburðum á sjónum og undir lok viðtalsins spurði fréttamaðurinn, Guðmund, sem þá var kominn í land sem eldriborgari:,, Varstu aldrei hræddur Guðmundur í þessum átökum?"  ,,Nei aldrei, en ég er stundum hræddur núna ef ég þarf að ganga yfir Miklubrautina." Mér fannst þetta gott svar og vil að það lifi.

Eftir fréttinni af þessum atburði fékkst ekki leyfi stjórnvalda til að taka rússneska togarann með valdi og menn virðast hafa verið skíthræddir. Hverjir voru á vaktinni í stjórnarráðinu þarna?

 


mbl.is Bíræfnir Rússar staðnir að ólöglegum veiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 24. apríl 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband