Var við hátíðarhöldinn eftir krýninguna

Það er gaman að segja frá því að_tskrift_halldoru_23_10_2010_23-26-17.jpg Halldóra systir var við hátíðarhöldin  eftir að Elísabet var krýnd, hugsanlega eini núlifandi Íslendingurinn sem var viðstödd þann atburð.

Allt var þetta mikið tiltur, menn í skrautklæðum og prúðbúnir hestar og vagnar og mikil veisluhöld.

Allt þetta fengum við að frétta af, beint í æð því Halldóra var dugleg að skrifa og segja frá atburðum og því sem fréttnæmt var, en hún var að vinna í Bretlandi á þessum tíma sem þóttu nú forréttindi fyrir ungt fólk.

Hún hefur alltaf dáð drottninguna og ævinlega spurt þegar mynd hefur birst af henni; ,,Var hún ekki með töskuna", en það hefur verið eitt af kennileitum drottningarinnar.

Nú eru þær báðar orðnar gamlar með sitt silfurgrá fallega hár og greiða svipað enn.

Leyfi mér að birta mynd af Halldóru og kvennafkomendum hennar.

Það eru víða drottningar.


mbl.is 65 ár síðan Elísabet varð drottning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 6. febrúar 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband