Hvað nú Framsóknarmenn?

hvanneyri_ag_2008_019_1292185.jpgÞað eru nú ýmsar spurningar og vangaveltur sem skjóta upp kollinum vegna framboðs Sveinbjarnar Eyjólfssonar.

Hvort það sé gervi eða gilt?

Það er engum vafa undirorpið að Sveinbjörn býr yfir margþættri reynslu sem framkvæmdarstjóri fyrirtækis í eigu bænda á landsvísu  (Nautastöðvarinnar á Hvanneyri og nú á Hesti í Borgarfirði), þar sem hann var vel þokkaður eftir því sem ég hef heyrt best. Sveitarstjórnarmaður um ára bil og langhlaupari í Framsókn, ólíkt  Sigmundi sem kom eins og maríerla án prófa frá útlöndum og hafði ekki mikið starfað í stjórnmálum áður, en heyrt eitthvað mas við matarborði af Möðruvallarhreyfingunni í bernsku og bardögum þar eins og gengur.

Sveinbjörn hefur dágóða búfræðimenntun sem er svona almenn menntun sem gagnast víða, fyrir nú utan það að hafa verið aðstoðarmaður landbúnaðrráðherra Guðna Ágústssonar.

Svo er forvitnilegt að sjá hverjir eru bloggvinir Sveinbjörns og það útskýrir margt.

Þannig að mínu mati og fleiri er hér um gilt framboð að ræða og enginn aukvisi á ferð og sagður skemmtilegur og góður hestamaður og elskur að bændum og vel tengdur inn í landbúnaðinn sem hefur verið höfuð vígi Framsóknar, en margir bændur eru farnir að ókyrrast út af hugsanlegum afdrifum búvörusamninga.

Þannig að Sveinbjörn er búin að gára pollana og gefur þá yfirlýsingu að ef einhver kemur sem er betur ,,vaxinn" í embættið muni hann snarlega draga sig til baka sem er á vissan hátt heiðarlegt og drengilegt.

2014-07-17_19_26_47.jpgÞað er nokkuð ljóst að til nokkurr tíðinda dregur á þessum vettvangi og undiralda er mikil sérstaklega ef einungis 6 þingmenn eru í spilunum samkvæmt nýjustu spám sem greint var frá nú nýverið.

Er þá að litlu að hverfa ef engin breyting verður þar á og ástæðulaust að eyða tíma og peningum í máttlusar bombur og fánýt sambönd.


mbl.is Býður sig fram gegn Sigmundi Davíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 11. september 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband