Ein breið brú

Prédikun dagsins hjá Vegagerðinni er ein breið brú. Hvað þýðir það á íslensku. Jú ein breið brú framundan. Það ætti náttúrlega að standa þarna mjó og þröng brú og sitt hvoru meginn ættu að vera háar hraðahindranir svo það væri alveg klárt að bílar lækkuðu hraðan og jafnvel köstuðust út af veginu svo það yrði ekkert slys. Svo mætti t.d. hafa viðvörun á ensku.

Þá mætti vera öflugri hættuljós við brýrnar í myrkri svona eins og notað er við í vitum landsins til að leiðbeina skipstjórnarmönnum eða flugmönnum. Allt er þetta þekkt, en einhverra hluta ekki notað hjá Vegagerðinni. Nú hélt ég að vegamálastjóri væri skýr maður, en vitanlega vantar peninga í málin.

Hvalfjarðargöngin eru svo sér kapituli. Um dagin varð eitthvert fár í göngunum og þá fór ég að skoða aðstæður þar, sem ég svo sem vissi af ferðum mínum, þar í geng um tíðina.

Vegstikur eru illa þrifnar þar svo þær veita vegfaranda ekki þær upplýsingar og aðhald sem ella væri og vantar að kanturinn sé málaður gulur  eða með sjállýsandi fosformálningu.

Allt er þetta öryggisatrið sem Vilhjálmur bendir á og sjálfsagt mikið betra að kjósa hann en Árna Johnsen. Árni er bara í einhverju veseni. En náttúrlega er það mál höfuðverkur Sjálfstæðismanna og líkur því hér þessari bloggfærslu.


mbl.is Vill betri merkingar á þjóðvegum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. ágúst 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband