Vorjafndægur-Jafndægur á vori

TjörninMeð orðinu jafndægur er átt við þá stund þegar sól er beint yfir miðbaug jarðar, sem í fornu máli hét jafndægrishringur, og dagur og nótt eru jafnlöng um alla jörðina. Notuð eru orðin og orðasamböndin vorjafndægur, vorjafndægri, jafndægur á vori og jafndægri á vori og eru þau á tímabilinu frá 19.-21. mars en haustjafndægur, haustjafndægri, jafndægur á hausti eða jafndægri á hausti eru á bilinu 21.-24. september.

Úr þessu getur ekkert gerst nema að tíðarfar fari batnandi því sólinn vinnur það vel með í málinu.

Á þessum tímapunkti var maður oft farinn að huga að Hallgrímskirkja í vetrarbúningivorveku í búskpnum, svo sem að slóaðadrag tún þ.e. mylja húsdýraáburð sem dreift hafði verið að hausti. Þá gat verið hagkvæmt að herfa flög á klak, þá þurfti að vera þinað nokkurt lag í flaginu en klaki það mikil að dráttarvélin færi ekki niðrúr klakanum. Nauðsynlegt var að vera á góðum keðjum. Þessi aðferð við jarðvinnslu var mjög góð því torfið muldist svo vel og varð góður sáðbeður  til að taka við grasfræinu seinna.

Við sólmyrkvan nú gaf Veðurstofa Íslands það út að hiti hefði lækkað um 1/2 gráðu á meðan myrkvin stóð yfir.

Sumarstemming við Hallgrímskirkju

 

Blessuð sólin

Hannes Hafstein

 

Blessuð sólin elskar allt,

allt með kossi vekur,

haginn grænn og hjarnið kalt

hennar ástum tekur.

 

Geislar hennar út um allt

eitt og sama skrifa

á hagann grænan, hjarnið kalt

himneskt er að lifa.


mbl.is Sólmyrkvinn heillar nemendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 20. mars 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband