Tónleikar Söngfuglanna á Droplaugarstöðum

 Gunnar B.H. Sigurðsson og konu sinni ÞórdísiÁ dvalarheimilinu Droplaugarstöðum dvelur frændi minn og vinur og fór ég að heimsækja hann í dag og næla mér í ágæta tónleika sem þar voru auglýstir. Í ágætri auglýsingu sem heimilið gefur út, svona viðburðardagatal, sá ég að þessir tónleikar voru auglýstir. Þar voru á ferðinni samkór sem kallar sig Söngfuglar kór eldri borgara á Vesturgötu 7.

Kórinn skipa 6 karlaraddir og 14 konur. Stjórandi  kórsins er Krisztína Kalló Szklenár ungverks að uppruna en talar prýðilega íslensku og var alltaf brosandi og kynnti lögin á skemmtilegan hátt.

Hluti fjölskyldunnarTónleikarnir hófust með því að krummi flaug lágflug yfir og settist á grindverk og heimtaði mat og að sungið yrði krummi krúnkar úti. Frændi veitti krumma athygli enda gefur sá fugl mönnum mikið ef honum er veitt athygli. Sjálfur held ég 2 hrafna á mínum slóðu, það er nefnilega auðveldara en að halda hund. Engin tók mark á þessari kröfu krumma. Sennilega engin skilið hana nema ég.

Kórinn var með blandaða dagskrá sem vel átti við þessar aðstæður. Byrjað var að syngja allmörg lög innlend og erlend með íslenskum texta. Svo sem Rósin, Vorómar, Liljan, Sunnudagur við fossinn, Sunnan yfir sæinnog Varir þegja. Svona lög falla vel í kramið hjá eldri borgurum og vistmönnum. Það var klappað eftir hvert lag eins og fólk hafði heilsu til.

Síðan tók hefðbundi jólalagadagskrá við og söng kórinn 5 jólalög og var endað á Heimsum ból og tóku flestir undir. Aukalagið var með sínu sniði og átti vel við alla, Fyrr var oft í koti kátt og tóku flestir vel undir.

Í góðravina hópiSöngfuglarnir eru mjög frambærilegur kór,syngur af festu og öryggi og söngstjórinn hafði gott vald á kórnum. Raddir voru í góðu jafnvægi og hljómuðu mjög samstæðar, engin sem skar sig úr eins og stundu vill verða þar sem eru miklar söngdýfur innana borðs. Karlarnir stóðu sig vel og kunnu allt sem þeir áttu að leggja fram.

Þessi kór mætti syngja víðar á almannafæri nú um jólin. Þetta var virkilega góð skemmtun og ánægjulegt að sjá hvernig fólk er að gleðja gamla fólkið á aðventunni.

Mér sýnist allt starfsfólk á Droplaugarstöðum leggja sig fram um að láta umbjóðendum sína líða vel og það er yndislegt og það ber að þakka.Kærar þakkir fyrir góða skemmtun.


Bloggfærslur 18. desember 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband